júní 8, 2008

Útvarpsþátturinn minn

Og hey. Eitt enn.

Ég er kominn með útvarpsþátt. Ég er orðinn meðstjórnandi útvarpsþáttarins Fönkþátturinn á X-inu 977, öll fimmtudagskvöld á milli ellefu og eitt, ásamt D. Balla F.

Þið getið hlustað á þáttinn með útvarpstækjunum ykkar, á tíðinni 97.7 megarið, eða á netinu, á meðan að útsendingu stendur. Einnig getið þið hlustað á nýjasta þáttinn eftir á, á vefútvarpssíðu X-ins á Vísi.is. Til stendur að henda upp podcasti af þættinum, við erum að reyna að finna út úr því.

Tékkið endilega á þættinum, ef þið hafið áhuga á því nýjasta sem er að gerast í hressri elektrónískri músík.

Grettir mínus grettir plús grettir samasem...

Í byrjun mars skrifaði ég um Garfield minus Garfield, sem er nokkuð súrrealísk endurvinnsla á teiknimyndasögunum um Gretti, þar sem að allir nema Jón eru fjarlægðir, og í ljós kemur dýpri sannleikur um einmanna manninn sem talar við gæludýrin sín. Drullufyndið líka.

Ég var að rekast á nokkuð skemmtilega grein um þetta, sem inniheldur m.a. viðtal við Jon Davis, höfund Garfield. Stórmerkilegt.

júní 6, 2008

Ekki versla við Burger King.

Ekki versla við Burger King.

maí 23, 2008

Tilvitnun vikunar

"Ég held með Barbímanninum og mömmu hans"


Haft eftir leikskólabarni, sem Dagný sá í viðtali við einhverja sjónvarpsstöðina, um hvern barnið styddi í Eurovision

Auglýsingabrandari dagsins

"Láttu ekki vín breyta þér í Húsa og Völu!"

brandari stolinn frá Ara Eldjárn

maí 22, 2008

dúdídú...

Jæja.

Þið eruð svona hress.

Meira djöfulsins böggið er að viðhalda svona bloggsíðu.

Það er svo merkilegt, að þegar það er eitthvað í gangi í lífinu mínu sem er frásagnavert, hef ég yfirleitt ekki tíma eða orku aflögu til að vera að skrifa einhverjar ritgerðir um það hér. Og þegar ég hef tíma til að blogga, eins og núna, þá er voða lítið til að segja frá...

...og þó.

Hér á eftir koma helstu fréttir úr lífi Sveinbjörns.

#1:
Ég er búinn í listaháskólanum. Allar einkunir eru komnar, og það eina sem stendur eftir er að mæta á útskriftina, 31. Mai. Ég er ennþá að meta með mér hvort, og þá hvernig ég ætla að fagna útskriftinni.

#2:
Ég hef hafið störf hjá Jónsson & Le'macks að nýju. Ég tók mér heillangan tíma í að skoða atvinnumarkaðinn, tala við auglýsingastofur og önnur fyrirtæki, og komst svo að því að skemmtilegasti staðurinn fyrir mig til að vera á er JL. Ég verð samt bara hér fram í október, því að...

#3:
Í október fer ég út til New York í þrjá mánuði í starfsnám til hönnunarstofunar karlssonwilker. Ég hef haft hugann við að fara eitthvað út og reyna fyrir mér, og þetta er fyrsti liðurinn í því. Ég mun að öllum líkindum hefja störf aftur hjá JL og vera þar í þónokkurn tíma eftir það, en í fjarlægri framtíð mun ég búa erlendis. Og vera ýkt frægur þar. Kannski kúabjölluleikari hjá Depeche Mode? Eða Metallica!

#4:
Ég er kominn með netta dellu fyrir CSS hönnun (þeas. vefhönnun). Ég setti upp Portfolío síðu um daginn, sem ég hef verið að nota sem vettvang undir tilraunastarfsemi á þesum vettvangi, en er ég farinn að djöflast í þessarri síðu líka. Ég kann ekkert voða mikið í þessarri tækni ennþá, þannig að ég fokka síðunni upp alltaf annað slagið... Þannig að ef þið komið hér inn og útlitið er eitthvað í rugli, þá vitið þið að ég er einhversstaðar með sveittann skallann á bak við skjáinn að skemma kóðann.

apríl 24, 2008

Og eitt enn

Og eitt enn:

Kíkið endilega á útskriftarsýningu LHÍ á Kjarvalsstöðum. Tékkið á því hvað ég og aðrir útskriftanemar hafa verið að bauka í vetur. Sýningin er opin til 2. mai.

Categories


Powered by
Movable Type 4.01