a href="http://www.sveinbjorn.com/" accesskey="1">

« apríl 2006 | Main | júní 2006 »

maí 30, 2006

Vá.

Ég veit ekki hvort er meira spúkí. Að þessi gæji hafi búið til risavef um skóreimingartækni, eða hvað mér finnst þetta spennandi.

maí 28, 2006

Cooper's Dip

Við erum að vinna í auglýsingu á stofunni sem á að hafa gamaldags áferð, og í einni af fornbókunum sem við erum að stúdera í leit að hugmyndum rakst ég á þetta:

Alltíeinu langar mér ekkert lengur í ódýfðar kindur.

maí 24, 2006

Average Homeboy AKA Blazin' Hazin

Björn Þór bloggað um séníið Average Homeboy áður (sjá hér og hér). Þetta undrabarn hiphop tónlistar vakti svo mikinn hrifning að mér að ég setti mér það komast að því hvað hafi orðið um hann. Eftir að hafa eytt tugum þúsunda dollara í einkaspæjara og genetískar ransóknir á myndskeiðunum tvemur hef ég loksins komist að sannleikanum:

» Average Homeboy 15 árum seinna

maí 22, 2006

Sveinbjörn Hermann Pálsson, 13 ára

Smellið á myndina til að stækka hana.

Nostalgia

fyrst að Bjölli er að tapa sér í barnaefnisnostalgíu, datt mér í hug að rifja upp mestu nostalgíuna mína.

Þættirnir heita Sú kemur tíð, og voru sýndir á íslandi þegar ég var pínulítill. �? mörg ár leitaði ég að einhverju efni tengdu þáttunum, en ég gat ekki fyrir mitt litla líf munað hvað þeir hétu. �? einhverju partíi fyrir svona fjórum árum síðan hitti ég loks mann sem gat sagt mér deili á þessum þáttum, og eftir nokkra vikna google leit fann ég loks þessi tvö myndskeið.

maí 20, 2006

Sniðugir hlutir sem ég fann á internetinu #1

Nokkrir sniðugir hlutir af internetinu:

1:
» Hálf-mennskt bítbox

2:
» Tölvulúðarnir á Something Awful spjallborðinu velta fyrir sér hvað gerist þegar þú snýrð við söguþræðinum í nokkrum þekktum bíómyndum

3:
» Nýtt í bíó: Must Love Jaws & 10 Things I Hate About Commandments.

maí 19, 2006

Frægir samstarfsmenn

Ég vinn, og hef unnið, með helling af stórmerkilegu fólki.

Ég rakst samt á bók um daginn sem sló allt út, hvað merkilegheit samstarfsmanna minna varðar.

Myndin segir meira en þúsund orð.

Vá.

maí 18, 2006

Eiturlyf

Horfðu á þetta og þér mun aldrei aftur langa að taka eiturlyf.

Nýr vinkill á það hvernig maður stelur tónlist

Finnst þér það að skrifa diska vera kids stuff? Tékkaðu þá á þessu!

I feel better when I get my life back on the track again

» Zorbatron - Better

Ég veit voðalega lítið um þennann tónlistarmann. Hann er frá Bellingham í Washingtonfylki, nálægt Seattle, Eins og Nicholas vinur minn og Ben, sem klippir mig stundum. Ég rakst einmitt á þetta lag á MySpace prófílnum hans Bens.

Ég hef svo sem ekkert meira um málið að segja. Ég er pínu hellaður í dag, og þetta lag skilur mig.

Djók.

En samt ekki.

» MySpace prófíll hljómsveitarinnar.

maí 16, 2006

Nýtt rafmagnstæki

Apple var að senda frá sér nýja fartölvu, og viti menn! Ég er slefandi og uppfullur af tækjalosta. Þetta er furðulegt fyrirbæri, þessi tækjalosti. Apple þarf bara að að setja hundaskít í glansandi kassa, og ég er tilbúinn að slefa yfir kassanum og gera heiðarlega tilraun til að selja Björn Þór í hvítann þrældóm til að eiga fyrir græjunni.

Og hvað er heillandi við nýju vélina? Jú, hún er svört. Skjárinn er glansandi. Hún er með sömu fídusana og MacBook Pro. Eflaust aðeins færri samt. Hún er með örgjörva sem er "betri", þó að forritin sem ég nota virka ekki ennþá sem skyldi á þessum örgjörva.

Ég hef semsagt ekkert við þetta að gera. En ég er samt búinn að setja Björn Þór á eBay.

Nýtt og fínt útlit

Ég var loksins að fatta hvernig maður skiptir um útlit í Movable Type. Kemur í ljós að það er dúndureinfalt.

Hvernig líst ykkur á?

maí 10, 2006

Samsæriskenningar

Helvíti gott innslag á Metafilter um samsæriskenningar:

"On a less personal level, this kind of stuff pisses me off because it achieves precisely the opposite of what it claims to achieve. There is an element to conspiracy theories, which is always used to validate them, which suggests that by not accepting the "official" explanation, the proponents of the theory are somehow sticking it to the man. If it weren't for the brave conspiracy theorist we'd all be sheep with no hope of ever breaking out of the cycle of propoganda and deceit that "they" are trying to foist on us. It's an attractive position, and, as mrmojo suggests, impossible to falsify, and one which, when applied to politics, might have some traction. When applied to science, however, it only serves to authorize the views of people who don't understand the science on a given subject. The very idea that there is an "official" version of some scientific theory mistakes arguing by assertion and authority (the province of the conspiracy theorist) with arguing by evidence based in hypothesis and experiment (the scientific method). The two are not the same."

Allt innslagið er hér.

Það er líka nokkuð gott innslag um þetta í nýjasta Grapevine.

maí 8, 2006

�s í góða veðrinu

� sólríkum dögum sem þessum er fátt betra en að skella sér niður á Austurvöll og fá sér �s í brauði.

�búð

Kæru vinir, aðdáendur, og ókunnugt fólk!

Mér Mig vantar íbúð til leigu. Helst í miðbænum. Einhverjar hugmyndir?

maí 7, 2006

Sjitt.

Björn Þór er ekkert smá mikill leiðindapúki.

maí 5, 2006

Teiknitaflan mín


maí 2, 2006

New York

Ég kom til baka frá NYC í síðustu viku. Ég var úti í tólf daga, og gisti hjá vinum mínum Haraldi og Baldri.

Ég var með einhverjar meiningar um það að ég ætlaði að blogga úr ferðinni, en það varð eitthvað lítið úr því.

Hérna eru þó hápunktarnir úr ferðinni:

Ég heimsótti styttuna af Britney að fæða - Monument to Pro-Life: The Birth of Sean Preston

Ég fór á tónleika með Ladytron og Nouvelle Vague.
Halli skrifaði um báða tónleikana.

Ég heimsótti AIGA safnið, KarlssonWilker, og tvö önnur bransakompaní.

Þessir hlutir voru samt ekki það sem situr helst eftir eftir ferðina. Það sem situr helst eftir er bara að vera þarna. Fólkið, andrúmsloftið... Ég get ekki tjáð mig um þetta mál án þess að vera alger klysja. Málið er bara að ég var að fara til útlanda í fyrsta skipti í öðrum erindargjörðum en á fyllerí, í verslunarleiðangur eða út af fjölskyldu.
Fólkið sem ég kynntist þarna var kurteist og almennilegt. Það voru allir hjálpsamir, og maður kom heim uppviðraður í gleðivímu yfir því hvað mannkynið væri allt í einu orðið næs. Gleðivíman var svo einhverja klukkutíma að renna af mér, og á tvemur-þremur dögum breyttist ég úr kurteisa og glaða útlandasvenna í fúla íslandssvenna aftur.
Halli var búinn að segja mér að svona væri heimkoman hjá honum í hvert skipti. Mér fannst það "týpískt Halli", þangað til að ég upplifði þetta sjálfur. �?ður þegar ég hef komið frá útlöndum hef ég alltaf verið feginn að vera kominn heim. Heimssýn mín var aldrei neitt miklu stærri en Kaffibarinn, útlönd var bara tilbreyting og ódýr föt. Heimkoman þýddi hvíld eftir 3-10 daga fyllerí, og tækifæri til að sýna fólkinu í heiminum mínum (barinn, skólinn, vinirnir) nýju fötin og segja stórar sögur frá útlandinu. �? þetta skipti var ég ekkert glaður að koma heim.

Ég ætla að fara að vinna í því að flytja út. Taka saman möppu, stúdera amerísku atvinnulöggjöfina og hita upp einhverja kontakta þarna úti. Svo þarf ég að hlusta á Aldrei fór ég suður með Bubba á rípít til að halda mér í landflóttastemmaranum.