« Nýtt og fínt útlit | Main | I feel better when I get my life back on the track again »

Nýtt rafmagnstæki

Apple var að senda frá sér nýja fartölvu, og viti menn! Ég er slefandi og uppfullur af tækjalosta. Þetta er furðulegt fyrirbæri, þessi tækjalosti. Apple þarf bara að að setja hundaskít í glansandi kassa, og ég er tilbúinn að slefa yfir kassanum og gera heiðarlega tilraun til að selja Björn Þór í hvítann þrældóm til að eiga fyrir græjunni.

Og hvað er heillandi við nýju vélina? Jú, hún er svört. Skjárinn er glansandi. Hún er með sömu fídusana og MacBook Pro. Eflaust aðeins færri samt. Hún er með örgjörva sem er "betri", þó að forritin sem ég nota virka ekki ennþá sem skyldi á þessum örgjörva.

Ég hef semsagt ekkert við þetta að gera. En ég er samt búinn að setja Björn Þór á eBay.

Comments

Ég er viss um að Omar Harabim í Jakarta verði betri eigandi en þú hefur verið. Sakna þín samt. Njóttu tölvunnar. Sniff.

nujjjjjjjjjjjjjjj

ég get sett bidnapper á Bjöllann.. jess ég vinn og enginn annar !!!

fret not bjölli boy.. þú ferð til hæstbjóðenda væni!

Post a comment