Að kasta góðum peningum á eftir slæmum
Orkuveitan er víst með ímyndarauglýsingaherferð í gangi þessa dagana. Merkilegt hvað þessi stofnun er eitthvað með brenglaða sjálfsímynd. Hálf furðulegt þegar maður pælir í því, opinber stofnun með útlitskomplexa, eins og unglingsstelpa. Útlitskomplexa og tugmiljóna auglýsingabudget.
Vandamál þeirra liggur helst í því að ímynd þeirra er aðallega slæm gagnvart þeim sem blöskrar óráðssíu í fjármálum hins opinbera. Þeir sem ég þekki sem á annað borð fíla ekki þessa stofnun, gera það á þeim forsendum að hún er búin að vera að henda miljörðum í útlit og hégóma, t.d. með byggingu stærsta skrifstofuhúsnæðis í reykjavík, og í allt of áhættusama tilraunastarfsemi, s.s. Lína.net og rafmagnslínuinternet tilraunaverkefnið þeirra, sem gekk aldrei almennilega upp.
Þess vegna er frekar kjánalegt að þeir skuli vera að kasta fullt af peningum í að lappa upp á þessa ímynd sína. Besta leiðin fyrir þá til að laga ímyndina væri klárlega að herða sultarólina. Þeir gætu plantað innslögum í 6tilSjö um að starfsmennirnir fá bara að borða hafragraut í hádeginu. Eða sýnt Alfreð Þorsteinsson að selja ljóð í Austurstræti til að láta enda ná saman.
- - -
Ég var að skrifa nýtt innslag á Breiðholt. Endilega tékkið á því.
Comments
Heh, þú skrifaðir óráðsía.
Posted by: Halli | 22.06.06 11:46