« Meira sjónvarpsstuð | Main | Ný vefsíða á internetinu »

Frábærar Auglýsingar #1

Auglýsingar, þegar þær eru sem bestar, ná að útskýra eða benda á tilfinningar á rosalega stuttum tíma, eða í mjög takmörkuðu rými. Virkilega skemmtileg auglýsing nær á þrjátíu sekúndum að kryfja til mergjar viðfangsefni sitt, og sýna manni einhverja nýja hlið á því.

Ég er mjög morgunfúll maður. Dröfn samstarfskona mín vill meina að þetta sé persónuleg afstaða, á meðan ég lít frekar á þetta sem fæðingargalla. Vísindin benda til þess að hún, frekar en ég hafi rétt fyrir sér.

» Folgers - Happy Mornings

En það skiptir ekki máli. Ég er kominn með bandamann. Folgers kaffi skilur mig. Þeir vita sem er að nýr morgunn hvers dags er aðskotadýr, sem verður að nálgast af varfærni. Allavega þangað til að maður fær kaffistundina sína.

- - -

Svo var ég að skrifa nýja færslu á Vesturgötu 10a, vinnubloggið okkar.

Comments

Ég held að sólskin og ylur virki best á morgunfýlu. Grár himinn, rigning og rok um hásumar fær alla til þess að langa að gráta í rúminu allan daginn og segja upp vinnunni.

Eða langa ekkert til að fá vinnu, hmm?

(og auglýsingin er 90 sekúndur, er hún ennþá góð?)

Post a comment