« Sniðugir hlutir sem ég fann á internetinu #2 | Main | Meira sjónvarpsstuð »

Sjónvarpsþáttur frumsýndur á YouTube

Ég er þessa stundina að horfa á "pilot" af sjónvarpsþætti sem heitir Nobody's Watching. Þessi prufuþáttur var framleiddur, en aldrei sýndur, og núna er einhver búinn að smella honum á netið. Hugmyndin er skemmtileg, tveir strákar sem fíla gamanþætti framleiða gamanþátt, í sjónvarpinu. Voða pómó allt saman.

Þátturinn er í þremur hlutum, þið getið skoðað hann hér:

1 - 2 - 3

Ég mæli einnig með standup myndinni hennar Söru Silverman, Jesus Is Magic. Sara er ofsalega sæt stelpa sem segir ofsalega ljóta brandara uppi á sviði, og kemst upp með það, út af því að hún er svo sæt stelpa. Tvær flugur í einu höggi ef þið eruð hlynnt bæði sætum stelpum og bröndurum. Ég er mikill aðdáandi brandara, þannig að þessi ræma hitti sérdeilis í mark hjá mér! Fimm stjörnur!

Comments

Jesus is Magic er stundum fyndin, en samt mjög asnaleg "bíó"mynd. Þetta er nefnilega bara stand-up mynd sem var döbbuð sem eitthvað allt annað, og þó að fröken Silverman sé alveg fyndin inná milli, þá er fátt leiðinlegra en að sitja í biósal og horfa á stand-up á tjaldi.

Finnst mér.

Ég hló alveg, en mér leiddist líka. Broskall.

Post a comment