« Vinir og kunningjar, nær og fjær | Main | Meira Yacht-rokk »

Meira sjónvarpsstuð

Það virðist vera að myndast sjónvarpsþema á blogginu þessa dagana. Ég var að fá þær stórkostlegu fréttir að það eigi að endurvekja sjónvarpsþættina Futurama. Fyrir þá sem ekki þekkja til, eru þetta þættir frá Matt Groening, framleiðanda The Simpsons, sem gerast í framtíðinni. Og eru ofsalega, ofsalega fyndnir. Þeir náðu aldrei nógu miklu fylgi á meðan þeir voru sýndir, og FOX ákvað að hætta að sýna þá fyrir tvemur árum. Þetta er bara í annað skipti í sjónvarpssögunni sem sjónvarpsþáttur er endurvakinn, hinn var Family Guy.

Comments

Var ekki það sama gert með Dead Like Me?

Mig minnir að sá þáttur hafi gengið frekar illa og verið cancelað, en cult-ararnir röfluðu í sjónvarpsstöðinni sem auglýsti þáttinn uppá nýtt og setti aftur á dagskrá.

Minnir mig.

Dead like me er annar þáttur sem pirrar mig, rétt eins og Scrubs. Leikið af fólki sem hefur ekki fengið fyndni í vöggugjöf að reyna að vera fyndið. Svo hermir ófyndið fólk eftir þessum "stíl", og ... æ.

Leave fynd to the pros, ppl!

Ef fólk skilur ekki hvað ég á við þegar ég tala um leikstílinn, fylgist þá með munnsvip leikaranna í svona þáttum. Munnsvipurinn er DEAD GIVEAWAY þegar fólk er annað hvort að ljúga, eða reyna að vera fyndið og mistakast. Sem er basically sami hluturinn.

En já! Futurama er gaman! Það kom mér á óvart að þeim hefði verið kanslað vegna áhorfendaskorts, mér fannst á sínum tíma einhvern veginn eins og allir hlytu að vita að Futurama væri stálið.

Krilli: þú ertað meina liðið sem fær svona "vahh-vahh-vahh-vúaaaaah" trompet þegar eitthvað fer í klandur?

Amm, hata'ða meððér.

Post a comment