a href="http://www.sveinbjorn.com/" accesskey="1">

« júlí 2006 | Main | september 2006 »

ágúst 29, 2006

Spencer Finch

» Spencer Finch er rosalega klár listamaður.

ágúst 28, 2006

Postsecret

Þið eruð eflaust flest búin að skoða síðuna, Halli er búinn að pósta link á hana svona tíu sinnum, en góð saga er aldrei of oft kveðin.

» PostSecret

Fólk sendir síðunni leyndarmálin sín á póstkorti. Einhverra hluta vegna fer ég alltaf og skoða þessa síðu aftur þegar ég er niðurdreginn.

ágúst 24, 2006

Design Observer

Ég fylgist oft með hönnunarbloggi sem heitir Design Observer. Pennarnir þar eru engir aukvísar, Michael Bierut, Jessica Helfrand og fleiri.

Tvær greinar hafa gripið mig sérstaklega hjá þeim undanfarið:

» Michael Bierut hringir í Arnold Newman


» Máttur samhengisins

ágúst 23, 2006

Ricky Gervais á yngri árum

Ég á hálf erfitt með að meðtaka það, en Ricky Gervais úr The Office var einusinni ungur og grannur og sætur og í nýbylgjuhljómsveit.

» Seona Dancing

ágúst 22, 2006

Hlerað í vinnunni

Ég heyrði þetta í pásu í vinnunni áðan:

"...Já, Hrafn Gunnlaugsson bauð mér í heimsókn, við fórum í sauna saman, svo bauð hann mér í bað... � lastarbælinu sínu." *



* Frásögnin er algerlega slitin úr samhengi

ágúst 21, 2006

Með trega í hjarta tilkynni ég...

Björn Þór er orðinn hippi.

ágúst 18, 2006

Nýtt hönn

Franz Ferdinand í Kaplakrika

Nick Cave í Laugardalshöll

Ég er alltaf á leiðinni að búa til portfolio síðu, í millitíðinni ætla ég að henda því sem ég hef verið að gera inn á Flickr.

Þið getið skoðað dótið hér.

ágúst 17, 2006

Lífið

Lífið útskýrt með einföldum skýringarmyndum

ágúst 16, 2006

Breiðholt

Ég var að skrifa tvær nýjar færslur uppí Breiðholti.

ágúst 14, 2006

Reiðhjól

Ég fór í hjólreiðatúr áðan. Svaka gaman. Þessa dagana er ég voða mikið í því að hanga á kaffihúsum og fara í hjólreiðatúra. Sem betur fer er einhver snillingur á internetinu búinn að sameina þessar tvær ástríður mínar.

» Bicycle coffee systems

�? túrnum hjóluðum við framhjá hressu pari um fimmtugt sem var að eiga náðugar stundir í engum fötum á bakvið móðufyllta glugga bíls sins. Þetta var á bílastæði við sjóinn útá Seltjarnarnesi. Það sem var svo merkilegt við þetta var að það var stöðugur straumur af bílum að keyra framhjá. Vinur minn kom með þá kenningu að þau hafi auglýst að þetta ætti að eiga sér stað þarna á netinu og boðið fólki að koma að horfa. Það er víst voðalega vinsælt sport þessa dagana.

ágúst 11, 2006

Ég fór einusinni til útlanda...

Þetta er sá hluti heims sem ég hef sigrað. Ósigruðu löndin eru grá. Þem fer ótt fækkandi.



create your own visited country map

ágúst 10, 2006

Iceland Airwaves

Það styttist í Iceland Airwaves. Þegar nær dregur ætlum við Björn Þór að gera hátíðinni góð skil uppí Breiðholti , birta tóndæmi með fullt af þessum hljómsveitum og fleira, en mér langar aðeins til að minnast á þær hljómsveitir á hátíðinni sem ég er heitastur fyrir núna.

Ég er spenntastur fyrir The Whitest Boy Alive, nýjustu hljómsveit Erlend Øye, sem var áður í Kings of Convenience. Það sem ég hef heyrt með þeim svipar mikið til KoC, en er jafnvel betra. The Go! Team er skandinavísk hljómsveit sem margir ættu að þekkja, sem svipar mikið til Junior Senior og The Avalanches. Ofurhress partímúsík. Brazilian Girls eru einnig soldið í ofurhressu partímúsíkinni.
Einnig er ég spenntur fyrir WhoMadeWho, sem spila hressilegt diskópönk og eru sniðug. Stærsta nafnið á hátíðinni er án efa Kaiser Chefs, þeir eru afkomendur Franz Ferdinand og nokk skemmtilegir. Svo eru Jónas og Addi að fríka út yfir Datarock, ég held að ég þurfi að fara að tékka á þeim bráðlega.

ágúst 9, 2006

Fontalúðar heims sameinist

Magnað.

Fyrsta kvikmyndin í fullri lengd um leturtýpu:
Helvetica.

ágúst 8, 2006

Innipúkinn

Ég fór á Innipúkann um helgina. Það var sýnilegt að troðningurinn á síðasta Innipúka lagðist ekkert svo vel í þá sem mættu þá, því að krádið í ár var allt annað en krádið í fyrra, þeir sem mættu þá voru ekkert að láta sjá sig núna. Það vantaði nokkurnveginn allar miðbæjarrotturnar. �? heildina voru talsvert færri sem mættu, sem var bara fínt, minni troðningur og minna loftleysi gerði þetta að miklu skemmtilegri Innipúka en síðast.

Það sem stóð helst uppúr var Mugison. Ég hef séð hann á tónleikum sex sinnum, í hvert skipti hefur hann náð að gjörbreyta settinu sínu. Ég sá hann fyrst á Sónar í Barcelona fyrir tvemur árum, þá var hann einn á sviðinu með gítar og fartölvu, að gera ótrúlega hluti. Svo hefur hann t.d. komið einn fram og tekið blúsútgáfur af lögum sínum á kassagítar, eða með allri fjölskyldunni á sviðinu í brjáluðu singalong. �? þetta skiptið var hann með þriggja manna hljómsveit og lögin hans voru öll í einhverjum blúsmetal fíling. Um miðja tónleikana tilkynnti hann svo símanúmerið hjá umbanum sínum og bað áhorfendur vinsamlegast að senda honum SMS að tónleikum loknum og dæma frammistöðu hljóðfæraleikaranna.

Leiðrétting

Tæknipúkinn er eitthvað að stríða blogginu mínu. � síðustu færslu skrifaði ég um Heitt & kalt í birtu:

Heitt eru hlutir eins og Sólskin eða Grillveislafjöldamorð og að níðast á gömlu fólki.

Það sem átti að standa var

Heitt eru hlutir eins og Sólskin eða Grillveisla á sumrin, Kalt eru hlutir eins og fjöldamorð og að níðast á gömlu fólki.

Villan stafar af ólokuðu html taggi. Ég vil biðjast Birtu og pennum þeirra afsökunar, það var ekki meining mín að halda því fram að þeir væru fylgjandi grillveislufjöldamorðum.

Kær kveðja,
Sveinbjörn Pálsson.

Heitt & kalt

Það er fastur siður hjá JL á föstudögum að lesa upp Heitt & Kalt úr Birtu. Dröfn í Rokklingunum eða Björn Þór sjá um það til skiptis. Fyrir lesturinn er spáð hvað sé á listanum þessa vikuna, og yfirleitt náum við svona 75% af öllum liðunum. "Heitt" er hlutir eins og t.d. Sólskin eða Grillveisla á sumrin, Kalt eru hlutir eins og fjöldamorð og að níðast á gömlu fólki.

�rni Mondeyano gerir alltaf sína útgáfu af þessu í hverri viku.

Þið getið fylgst með í hverri viku hérna.

ágúst 5, 2006

Tonypa

Tonypa býr til gáfumannatölvuleiki. Eða kannski frekar þroskaleikföng fyrir fullorðið fólk.

ágúst 2, 2006

Ray Cokes

MTV átti 25 ára afmæli í gær. Sýn manna á hver gullöld MTV hafi verið er æði misjöfn, sumir vilja meina að Yo! MTV Raps! tímabilið í kringum '86 hafi verið hápunkturinn, aðrir tala um mómentið þegar Grunge og Rapp kepptust um hylli í kringum '92, sumir sjá nýbylgjuna þegar stöðin var að byrja í mestum hillingum. Ég held að allir líti samt á að MTV hafi verið best þegar þau voru 15 ára.

Þegar ég var 15 ára var Ray Cokes kongurinn á MTV Europe. Þáttur hans, MTV Most Wanted, var eins og lífæð þess sem var kúl og sniðugt í heiminum fyrir afskekktu barni á íslandi. Þátturinn var sá vinsælasti í sögu MTV, og í kjölfarið ákvað stöðin að búa til stærri, vikulega útgáfu af þættinum sem snérist meira um persónu Ray, X-Ray Vision.
Þátturinn gekk í nokkrar vikur, en eftir beina útsendingu frá Hamburg þar sem að drukkinn lýðurinn kastaði bjórflöskum og lét öllum íllum látum fór Ray yfirum í beinni og þættinum var lokað í kjölfarið.

Eftir þetta er Hr. Cokes búinn að vera á flakki um Evrópu, með þætti í Þýskalandi, Lúxembúrg og Bretlandi, en aldrei með sömu vinsældir og hann var með á MTV.

Hér er heimildarþáttur um Ray og Most wanted (af YouTube):
» Fyrri hluti

» Seinni hluti

Og svo eru fullt af upptökum úr þættinum hans á YouTube, sjá hér

ágúst 1, 2006

Myndir

JL Studs

Svenni og skræpótta fólkið

Kristleifur