« Fontalúðar heims sameinist | Main | Ég fór einusinni til útlanda... »

Iceland Airwaves

Það styttist í Iceland Airwaves. Þegar nær dregur ætlum við Björn Þór að gera hátíðinni góð skil uppí Breiðholti , birta tóndæmi með fullt af þessum hljómsveitum og fleira, en mér langar aðeins til að minnast á þær hljómsveitir á hátíðinni sem ég er heitastur fyrir núna.

Ég er spenntastur fyrir The Whitest Boy Alive, nýjustu hljómsveit Erlend Øye, sem var áður í Kings of Convenience. Það sem ég hef heyrt með þeim svipar mikið til KoC, en er jafnvel betra. The Go! Team er skandinavísk hljómsveit sem margir ættu að þekkja, sem svipar mikið til Junior Senior og The Avalanches. Ofurhress partímúsík. Brazilian Girls eru einnig soldið í ofurhressu partímúsíkinni.
Einnig er ég spenntur fyrir WhoMadeWho, sem spila hressilegt diskópönk og eru sniðug. Stærsta nafnið á hátíðinni er án efa Kaiser Chefs, þeir eru afkomendur Franz Ferdinand og nokk skemmtilegir. Svo eru Jónas og Addi að fríka út yfir Datarock, ég held að ég þurfi að fara að tékka á þeim bráðlega.

Comments

Svo megið þér ekki gleyma Wolf Parade.

Það á að segja „mig langar“

eða "ég lang".

Sveinbjörn: ætlaru að fljúga mér yfir hafið svo ég geti notið biðraðanna með þér?

Hafa eitt *-Parade kvöld, með Wolf Parade, Mice Parade og Shadow Parade.

Það væri cool.

Er addi líka að missa sig yfir FaFaFa?

ég er að fara á þessa hátíð, samt þekki ég ekki neitt sem er að spila.. mamma bara sagði um daginn hún ætlaði að kaupa fyrir mig miða á þetta..

Eru Go! Team ekki frá Brighton í Englandi? Er eitthvað nordískt við það?

bara pæling.

En annars er lænuppið fyrir airwaves alveg æðislegt.

Halli:
Ég mun hugsa til þín með tárvot augun þegar ég horfi á gatið í röðinni þar sem Haraldur ætti að vera.

Gummi:
Brighton er náttúrulega svo svakalega skandinavískur staður...

Go! Team eru ekki skandinavískir mar!

Það má alveg langa í hvað sem er. Tungumálið þróast. Ef þúsundir segja "mér langar" er það komið. Stöngin inn.