« Leiðrétting | Main | Fontalúðar heims sameinist »

Innipúkinn

Ég fór á Innipúkann um helgina. Það var sýnilegt að troðningurinn á síðasta Innipúka lagðist ekkert svo vel í þá sem mættu þá, því að krádið í ár var allt annað en krádið í fyrra, þeir sem mættu þá voru ekkert að láta sjá sig núna. Það vantaði nokkurnveginn allar miðbæjarrotturnar. �? heildina voru talsvert færri sem mættu, sem var bara fínt, minni troðningur og minna loftleysi gerði þetta að miklu skemmtilegri Innipúka en síðast.

Það sem stóð helst uppúr var Mugison. Ég hef séð hann á tónleikum sex sinnum, í hvert skipti hefur hann náð að gjörbreyta settinu sínu. Ég sá hann fyrst á Sónar í Barcelona fyrir tvemur árum, þá var hann einn á sviðinu með gítar og fartölvu, að gera ótrúlega hluti. Svo hefur hann t.d. komið einn fram og tekið blúsútgáfur af lögum sínum á kassagítar, eða með allri fjölskyldunni á sviðinu í brjáluðu singalong. �? þetta skiptið var hann með þriggja manna hljómsveit og lögin hans voru öll í einhverjum blúsmetal fíling. Um miðja tónleikana tilkynnti hann svo símanúmerið hjá umbanum sínum og bað áhorfendur vinsamlegast að senda honum SMS að tónleikum loknum og dæma frammistöðu hljóðfæraleikaranna.

Comments

Ullabjakk Mugison.