Postsecret
Þið eruð eflaust flest búin að skoða síðuna, Halli er búinn að pósta link á hana svona tíu sinnum, en góð saga er aldrei of oft kveðin.
Fólk sendir síðunni leyndarmálin sín á póstkorti. Einhverra hluta vegna fer ég alltaf og skoða þessa síðu aftur þegar ég er niðurdreginn.
Comments
Já, sama hér. Skil ekki afhverju. Skoða hana örsjaldan þegar ég er glaður, og ef ég geri það verð ég pínu leiður. Ó sá vítahringur.
Posted by: Halli | 28.08.06 15:12
Ég er með þetta í RSS áskrift, og ég hef tekið eftir því að nýjar færslur birtast yfirleitt þegar ég er eitthvað niðurdreginn. PostSecret skilur mig.
Posted by: Sveinbjörn Pálsson | 28.08.06 17:56