Ray Cokes

MTV átti 25 ára afmæli í gær. Sýn manna á hver gullöld MTV hafi verið er æði misjöfn, sumir vilja meina að Yo! MTV Raps! tímabilið í kringum '86 hafi verið hápunkturinn, aðrir tala um mómentið þegar Grunge og Rapp kepptust um hylli í kringum '92, sumir sjá nýbylgjuna þegar stöðin var að byrja í mestum hillingum. Ég held að allir líti samt á að MTV hafi verið best þegar þau voru 15 ára.
Þegar ég var 15 ára var Ray Cokes kongurinn á MTV Europe. Þáttur hans, MTV Most Wanted, var eins og lífæð þess sem var kúl og sniðugt í heiminum fyrir afskekktu barni á íslandi. Þátturinn var sá vinsælasti í sögu MTV, og í kjölfarið ákvað stöðin að búa til stærri, vikulega útgáfu af þættinum sem snérist meira um persónu Ray, X-Ray Vision.
Þátturinn gekk í nokkrar vikur, en eftir beina útsendingu frá Hamburg þar sem að drukkinn lýðurinn kastaði bjórflöskum og lét öllum íllum látum fór Ray yfirum í beinni og þættinum var lokað í kjölfarið.
Eftir þetta er Hr. Cokes búinn að vera á flakki um Evrópu, með þætti í Þýskalandi, Lúxembúrg og Bretlandi, en aldrei með sömu vinsældir og hann var með á MTV.
Hér er heimildarþáttur um Ray og Most wanted (af YouTube):
» Fyrri hluti
Og svo eru fullt af upptökum úr þættinum hans á YouTube, sjá hér
Comments
Ray Cokes, þetta burstaklippta goð, mun ávallt vera efni sælla minninga unglingsára minna. Guð blessi þig Sveinbjörn minn.
Posted by: bob | 02.08.06 13:20