Reiðhjól
Ég fór í hjólreiðatúr áðan. Svaka gaman. Þessa dagana er ég voða mikið í því að hanga á kaffihúsum og fara í hjólreiðatúra. Sem betur fer er einhver snillingur á internetinu búinn að sameina þessar tvær ástríður mínar.
�? túrnum hjóluðum við framhjá hressu pari um fimmtugt sem var að eiga náðugar stundir í engum fötum á bakvið móðufyllta glugga bíls sins. Þetta var á bílastæði við sjóinn útá Seltjarnarnesi. Það sem var svo merkilegt við þetta var að það var stöðugur straumur af bílum að keyra framhjá. Vinur minn kom með þá kenningu að þau hafi auglýst að þetta ætti að eiga sér stað þarna á netinu og boðið fólki að koma að horfa. Það er víst voðalega vinsælt sport þessa dagana.
Comments
Pant fá þig í hjólatúr, það var gaman þegar við tókum Hafnarfjörðinn, golfvöllinn og skorpinn ná Sædýrasafnsins, þarna fyrir ca. ári síðan.
Posted by: krilli | 15.08.06 13:26
Ení tæm. Ég get samt ekki lofað sama útsýni og í hjólreiðatúrnum í gær...
Posted by: Sveinbjörn Pálsson | 15.08.06 13:40
geturu ekki talað aftur við systur þína?
Posted by: katrín | 15.08.06 14:48