« Ã?rni Kristjánsson aftur | Main | Dídjei »

Fluttur

Til þeirra ykkar sem voru að farast úr áhyggjum yfir yfirvofandi heimilisleysi mínu færi ég gleðifréttir. Ég er fluttur á Njálsgötuna. Sambýlingar mínir eru Erna smíðakennari og �sak, 8 ára. �búðin er hin fínasta, risastór og fín, í nýbyggingu á vegum Leiguíbúða Ehf.

Gatan er hin skrautlegasta, og ber þá helst að nefna vinalega nágrannann. Ég veit reyndar ekki hvað maðurinn heitir, en hann situr alltaf í stofunni sinni ber að ofann að horfa á sjónvarpið og drekka bjór, óháð tíma sólarhrings. Stofuglugginn liggur út á götu, og það er alltaf dregið frá. Ég hef allavega sjaldan labbað þarna framhjá án þess að hann sé þarna, hress á kantinum. Einstaka sinnum heldur hann svo partí fyrir vini sína, þar sem þau koma saman og syngja sjóaralög fram á nótt.

Það þurfa allir einn naked neighbour, í það minnsta.

Comments

húrrah, loxins ?

er minigolf-vallar teppi og latex baðkar ?

Því miður. En maður getur látið sig dreyma...

viltu þá taka það að þér að flytja í húsið á móti mér og vera allsber?!

ehh kannast aðeins við þetta. Er nú að vinna í þessari götu. Veit nákvæmlega allt um alla þarna sem er mjög gott. Hefði getað sagt þér þetta áður en þú fluttir.. :) Heppinn að lenda ekki hjá gaurnum sem er alltaf ber að neðan.

Post a comment