a href="http://www.sveinbjorn.com/" accesskey="1">

« september 2006 | Main | nóvember 2006 »

október 31, 2006

Fyndnasta Beef í sögu hipphoppsins

Ég var að finna fyndnasta Beef í sögu hiphopsins:

Úr Wikipedia færslunni um Kid N' Play

"During the height of their popularity in early 1991, the duo had a short-lived "beef" with Vanilla Ice. The lyrics "You better hit bulls-eye/the Kid don't Play" from his hit "Ice Ice Baby" was a direct shot at the duo. They did not respond lyrically to this provocation, instead choosing to remain positive."

Innblásturinn að þessarri færslu kemur frá Kristleifur N' Daðason

október 29, 2006

Viðvörunarskilti framtíðarinnar



» Viðvörunarskilti framtíðarinnar

október 28, 2006

spam



október 27, 2006

Ég held að hann hafi ekki fengið hlutverkið...

október 26, 2006

Frábær nýr bloggvefur

Ef eitthvert ykkar er ekki komið með blogg ennþá þá mæli ég eindregið með VOX, nýrri blogg græju.

október 20, 2006

Airwaves planið í kvöld!

Svona lítur dagskráin út fyrir kvöldið:

Gaukurinn 20:45
Lisa Lindley Jones

NASA 21:30
Future Future

Pravda 22:00
Bloodgroup

Listasafnið
22:15
Apparat Organ Quartet

Pravda
23:20
Steed Lord
Mögulega mest trendí hljómsveit í sögu lýðveldisins.

Listasafnið
00:00
The Go! Team

01:00
"TBA"
(ég hef góðar heimildir fyrir því að Erlend Øye muni vera með DJ sett í þessu slotti)

01:20
Skatebård

03:00
Walter Meego DJ set


I've had the time of my life...

Djöfull fór ég á fína tónleika í gær. Fyrst fór ég með Bjölla og DD á Klaxons í listasafninu, svo hitti ég Odd og við sáum Datarock og The Whitest Boy Alive.

Klaxons voru ekki að gera neitt rosalega mikið fyrir mig. Hresst tónleikaband, þeir hoppuðu og skoppuðu um sviðið eins og þeim væri borgað fyrir það, en ég var ekki alveg að detta í gírinn. Datarock náðu að koma manni í talsvert betri gír, stígandinn í tónleikunum þeirra var ótrúlega þéttur og góður, og tónleikarnir þeirra náðu hámarki í einu flottasta tónleikamúvi sem ég man eftir. � staðinn fyrir að enda á aðal hittaranum sínum, eða hressu koverlagi, þá luku þeir tónleikana af með því að spila I've Had The Time Of My Life með Jennifer Warner, úr sándtrakkinu við Dirty Dancing. � meðan lagið spilaði tilkynntu þeir svo að hljómsveitin væri hætt störfum. Þó að mig gruni að það hafi ekki verið mikil alvara í tilkynningunni, þá þarf ótrúlega miklar hnetur til að taka svona stunt.
The Whitest Boy Alive byrjuðu frekar rólega. � milli fyrstu lagana var Erlend Øye að kvarta í hljóðmönnunum yfir mónítorakerfinu á sviðinu, og í fjórða eða fimmta lagi tók trommarinn flog og var næstum rokinn út af sviðinu út af því að það var of mikill gítar í mónitornum hans.
Stigandinn í tónleikunum hjá Whitest Boy var rosalega góður. Þeir byrjuðu í svakalega rólegu grúvi en enduðu á alveg mögnuðum koverum af Show Me Love með Robin S og Music Sounds Better With You með Stardust. Tónleikarnir enduðu svo, eins og allir góðir tónleikar eiga að gera, með að löggan mætti á svæðið.

október 19, 2006

TEЯЯЮЯDЇЈЅЌѺ

Rússarnir eru ekki að hata mig þessa dagana. Svona leit pósthólfið mitt út þegar ég mætti í vinnuna í morgun.

Dídjei sveppi

Ég var að spila á Pravda áðan, á Airwaves. Settið var ekkert spes, ég náði ekkert að undirbúa mig þannig að útkoman var ekkert til að hrópa húrra yfir.

Ég tók eftir því að einhverra hluta vegna voru alveg nokkrir sem ég þekki ekki mættir til að tékka á Terrordisco. Það var einhver ljósmyndari þarna, og einhverjir gaurar komu upp að mér fyrir settið og spurðu hvenær Terrordisco byrjaði.

Ég var náttúrulega geðveikt sáttur, handviss um að bio'ið sem ég fékk Ara til að skrifa fyrir airwaves vefsíðuna, og nýi Terrordisco vefurinn, væru að skila sér í einhverju hæpi.

Svo kemur ungur maður upp að mér og spyr mig hversvegna allir héldu að ég væri rússi. Þá kemur í ljós að þetta lið sem mættu til að tékka á dæminu voru allir rússar, sem komu til að skoða samlanda sinn.

Þá hafði ég sett inn (RU) fyrir aftan terrordisco nafnið í einhverju djóki þegar ég var að setja upp Airwaves dagskrána, og gleymt að taka það út...

október 18, 2006

Djí

Þetta er alveg ótrúlegt. Tveir útvarpsmenn á Rás 2 að tala um hvað ríkisstyrkir eru mannskemmandi fyrir tónlistarmenn eins og Gus Gus og Sigurrós. Það er eitthvað meira en lítið fyndið við það að hlusta á menn á ríkisspenanum að tala um hvað ríkisspeninn sé slæmur.

október 17, 2006

Sony Bravia

Þið munið væntanlega öll eftir Sony auglýsingunni frá því í fyrra með lituðu skopparaboltunum, sem notaði lagið Heartbeats í flutningi Jose González. Þessi auglýsing var svo vinsæl að Sony ákváðu að búa til aðra.

� nýju auglýsingunni eru ekki notaðir skopparaboltar, en í staðinn nota þau 70.000 lítra af málningu, og haug af allskonar sprengjum.

» Skoðið auglýsinguna hér.

október 15, 2006

Terrordisco

Ég er að fara að spila á Iceland Airwaves á Pravda á miðvikudaginn kl. 23:00, undir nafninu Terrordisco.

» Heimasíða Terrordisco er komin í loftið.
» Terrordisco á Iceland Airwaves
» Sækið Terrordisco mix.

október 13, 2006

Fyndið lógó

Ég er rosalega hrifinn af merki mjólkurfyrirtækisins Mjólka. Mér finnst það sjarmerandi sveitó, en samt með svona fagmannlega og stílhreina teikningu.

Þó hefur merkið aldrei náð að heilla mig jafn mikið og í þessu samhengi:

Það er eins og Osta- og Smjörsalan hafi tekið greyjið Mjólku-beljuna og grýtt henni í vegginn af einskærri markaðsráðandi íllmennsku. Þetta er örugglega einmitt það sem Einar Gylfa Örn Smári hafði í huga þegar hann teiknaði merkið.

Nostalgía #2

Þarsíðasta vetur vann ég ásamt fleirum að tímaritinu VAMM. Blaðið náði aldrei almennilega að verða að því sem ég vildi, en ég var að verða nokkuð sáttur við 10. tbl. af blaðinu. 11. tbl átti svo að verða alveg brilliant. Blaðið hætti þó útgáfu áður en að að því kom.

» 10. tölublað VAMM (pdf)

október 12, 2006

Allt að ske

#1
Ég var að kaupa mér nýja tölvu í morgun. Eftir mikil heilabrot ákvað ég að smella mér á 24" iMac.

#2
Snillingurinn Jens Lekman var að bætast við dagskrá Iceland Airwaves á síðustu stundu. Meira hér.

október 11, 2006

Kosningavél sjálfstæðisflokksins

Það er nokkuð ljóst að eitt helsta vopn sem sjálfstæðismenn nota til að ná góðum árangri í kosningum er vel smurð auglýsingavél flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einstakann aðgang að hæfileikaríkasta auglýsingafólki landsins, eins og má sjá á þessarri auglýsingu.

október 6, 2006

Plötukápur slást

» Plötukápur slást.

október 2, 2006

Fljúgandi Halli

Þegar ég var svona 12 ára sendi Aðalstöðin út enskumælandi útvarpsstöð sem hét Radio Luxembourg á nóttunni. Radio Luxembourg var poppstöð en á nóttinni voru þau með aðeins djarfari tónlistarval, og ég man sérstaklega eftir því að lagið Money með The Flying Lizards var mikið spilað þarna. Fyrir minn 12 ára haus var þetta súrasta lag sem ég hafði nokkurntímann heyrt, og ég vissi ekki hvort að ég ætti að elska eða hata þetta. Halli var að skrifa færslu um The Flying Lizards á tónlistarblogginu sínu.

- - -

Einnig vil ég benda áhugasama á að við Bjölli erum að taka fyrir alla helstu Airwaves artistana og linka á lög með þeim á skrúðgöngunni.