Dídjei sveppi
Ég var að spila á Pravda áðan, á Airwaves. Settið var ekkert spes, ég náði ekkert að undirbúa mig þannig að útkoman var ekkert til að hrópa húrra yfir.
Ég tók eftir því að einhverra hluta vegna voru alveg nokkrir sem ég þekki ekki mættir til að tékka á Terrordisco. Það var einhver ljósmyndari þarna, og einhverjir gaurar komu upp að mér fyrir settið og spurðu hvenær Terrordisco byrjaði.
Ég var náttúrulega geðveikt sáttur, handviss um að bio'ið sem ég fékk Ara til að skrifa fyrir airwaves vefsíðuna, og nýi Terrordisco vefurinn, væru að skila sér í einhverju hæpi.
Svo kemur ungur maður upp að mér og spyr mig hversvegna allir héldu að ég væri rússi. Þá kemur í ljós að þetta lið sem mættu til að tékka á dæminu voru allir rússar, sem komu til að skoða samlanda sinn.
Þá hafði ég sett inn (RU) fyrir aftan terrordisco nafnið í einhverju djóki þegar ég var að setja upp Airwaves dagskrána, og gleymt að taka það út...
Comments
Ahhh, þínar misskildu 12 sekúndur af frægð. Congrats.
Posted by: Halli | 19.10.06 04:38
hehehe snilld, Sveinbjörn Rússi
Posted by: Kristján Helgi | 19.10.06 10:46
Vá, ég hélt að fyrsta málsgreinin hans Ariels hefði verið um Sindra Eldon, „Sporting an almost unhealthy combination of flashy irreverance and juvenile self-pity". Sounds like Sindri too me!
Posted by: Steinn Linnet | 20.10.06 17:33