« Aww. | Main | Plötukápur slást »

Fljúgandi Halli

Þegar ég var svona 12 ára sendi Aðalstöðin út enskumælandi útvarpsstöð sem hét Radio Luxembourg á nóttunni. Radio Luxembourg var poppstöð en á nóttinni voru þau með aðeins djarfari tónlistarval, og ég man sérstaklega eftir því að lagið Money með The Flying Lizards var mikið spilað þarna. Fyrir minn 12 ára haus var þetta súrasta lag sem ég hafði nokkurntímann heyrt, og ég vissi ekki hvort að ég ætti að elska eða hata þetta. Halli var að skrifa færslu um The Flying Lizards á tónlistarblogginu sínu.

- - -

Einnig vil ég benda áhugasama á að við Bjölli erum að taka fyrir alla helstu Airwaves artistana og linka á lög með þeim á skrúðgöngunni.

Comments

Heh. Þú, Radio Luxembourg og Brúin á milli Manhattan og Ríkisins �slands.

Annars hafði þetta lag alltaf svipuð áhrif á mig, eða þ.e.a.s. ég sperrti alltaf eyrun og tjúnaði mig algjörlega inná lagið, sama hvort ég var í bíó eða skóbúð. Gekk samt aldrei svo langt að pæla mikið hvaða lag þetta var, því heilinn var of upptekinn við að vinna úr hlustuninni og var eiginlega uppgefinn þegar lagið hætti.

Og svo hefur lagið Lambada með Kaoma algjört heljargrip á mér. Kveikir í mér einhverskonar vangaballs-lostabál og ég fæ skrýtin fiðrildi í magann.

Post a comment