« TEЯЯЮЯDЇЈЅЌѺ | Main | Airwaves planið í kvöld! »

I've had the time of my life...

Djöfull fór ég á fína tónleika í gær. Fyrst fór ég með Bjölla og DD á Klaxons í listasafninu, svo hitti ég Odd og við sáum Datarock og The Whitest Boy Alive.

Klaxons voru ekki að gera neitt rosalega mikið fyrir mig. Hresst tónleikaband, þeir hoppuðu og skoppuðu um sviðið eins og þeim væri borgað fyrir það, en ég var ekki alveg að detta í gírinn. Datarock náðu að koma manni í talsvert betri gír, stígandinn í tónleikunum þeirra var ótrúlega þéttur og góður, og tónleikarnir þeirra náðu hámarki í einu flottasta tónleikamúvi sem ég man eftir. � staðinn fyrir að enda á aðal hittaranum sínum, eða hressu koverlagi, þá luku þeir tónleikana af með því að spila I've Had The Time Of My Life með Jennifer Warner, úr sándtrakkinu við Dirty Dancing. � meðan lagið spilaði tilkynntu þeir svo að hljómsveitin væri hætt störfum. Þó að mig gruni að það hafi ekki verið mikil alvara í tilkynningunni, þá þarf ótrúlega miklar hnetur til að taka svona stunt.
The Whitest Boy Alive byrjuðu frekar rólega. � milli fyrstu lagana var Erlend Øye að kvarta í hljóðmönnunum yfir mónítorakerfinu á sviðinu, og í fjórða eða fimmta lagi tók trommarinn flog og var næstum rokinn út af sviðinu út af því að það var of mikill gítar í mónitornum hans.
Stigandinn í tónleikunum hjá Whitest Boy var rosalega góður. Þeir byrjuðu í svakalega rólegu grúvi en enduðu á alveg mögnuðum koverum af Show Me Love með Robin S og Music Sounds Better With You með Stardust. Tónleikarnir enduðu svo, eins og allir góðir tónleikar eiga að gera, með að löggan mætti á svæðið.

Post a comment