Linkasúpa með dass af sögurþræði
Helvíti góður dagur.
Ég kláraði jólagjafainnkaupin, kláraði to-do listann í vinnunni fyrir jólin og fór á tvo tónleika.
Fyrri tónleikarnir sem ég sótti voru með Jóni Tryggva á Prikinu. Jón er ótrúlega hæfileikaríkur söngvari og lagasmiður, og á örugglega eftir að ná mjög langt.
Svo fór ég að sjá Reykjavík! á Dillon, en þeir fluttu einmitt jólahittarann Jólasnjó. Jólasnjór er næst-neikvæðasta jólalag sem samið hefur verið á eftir upprunalegu útgáfunni af Have Yourself A Merry Little Christmas. Lagið, eins og það hljómaði upprunalega var með línur eins og "Have yourself a merry little Christmas / It may be your last". Ef þið eruð í stuði fyrir aðeins meira upplífgandi jólamúsík þá er jólaplatan hans Sufjan Stevens hressasta jólaplata sem ég hef heyrt í háa herrans tíð. [ tóndæmi ]
Við Björn Þór höfum mikið verið að ræða að gera árslista á B-Town Hit Parade, og ég held að ég hafi fundið pottþéttar leiðbeiningar hvernig maður eigi best að gera trendí árslista. Ef það bregst getum við alltaf haft listana á haiku formi.
Fleiri linkar:
» Skrítnar plötukápur og sögur þeirra.
» Steven Colbert vs. The Decemberists.