a href="http://www.sveinbjorn.com/" accesskey="1">

« desember 2006 | Main | febrúar 2007 »

janúar 30, 2007

Ég er íslandsmeistari í næntís, frjálsri aðferð.

Ég var að taka við íslandsmeistaratitlinum í Næntís, frjálsri aðferð.

Hvernig fór ég að því?

Jú, ég var að fá mæspeis komment frá eina eftirlifandi meðlimi Milli Vanilli. Geri aðrir betur.

janúar 28, 2007

Sveinbjörn punktur eitthvað

Mér til mikillar armæðu er ég ekki eini Sveinbjörninn, og ekki nóg með það, ég er ekki einusinni eini Sveinbjörn Punktur eitthvað.

Keppinautar mínir á þessu sviði eru tveir, annarsvegar Sveinbjörn.is, sem bloggar um mótorhjól og myndir af stráknum sínum, og svo Sveinbjörn.org, sem er með stórskemmtilegt blogg, þar sem hann er m.a. með Harmonikkuspurningakeppni og fleira skemmtilegt. Svo hefur hann einnig búið til haug af Makkaforritum sem hann birtir á síðunni sinni, m.a. DOS hermirinn Radnor sem ég notaði einhverntímann til að spila hið snildarlega DOS forrit Skyroads.

janúar 24, 2007

Sorgartíðindi

Ég hitti úlling áðan sem bar mér sorgartíðindi.

Úllingnum, sem var mikið niður fyrir, sagði mér, með grátstaf í kverkum, að hið séríslenska fyrirbæri sem er sjoppuhangs unglinga, sé algerlega dottið uppfyrir.

Svo virðist sem að internetið, og þá sér í lagi bloggsíður og MSN, hafi á undanförnum árum gengið að sjoppum dauðum. Nú hanga krakkar ekki lengur fyrir utan Seljavídeó og Sunnutorg og sníkja sígarettur og skyrpa á gangstéttina, heldur sníkja þau sígarettur af hvoru öðru á MSN og skyrpa á kommentakerfin hjá hvoru öðru.

Af er sem áður var.

Jeff Bridges

Ég var að gramsa í gömlum emailum og fann þar link á þetta - Bloggsíðu leikarans Jeff Bridges.

Síðan er helst merkileg fyrir það að allur textinn er handmálaður. Þetta er voðalega spes.

» Jeff Bridges Bloggar

janúar 17, 2007

Til hamingju!

Til hamingju Halli, Margeir og Borgar með tilnefningarnar til íslensku vefverðlaunanna!

Tveir vefir sem ég hannaði eru einnig tilnefndir: 66 Norður og Margeir.com.

janúar 15, 2007

Lífið útskýrt með einföldum skýringarmyndum

Ég var áður búinn að benda á Indexed, sem er blogg þar sem að ráðgátur lífsins eru útskýrðar með einföldum stærðfræðiskýringarmyndum. Hérna er vídeó útgáfa af þessu. Mjög fyndið.

janúar 12, 2007

Af mér er tvennt að frétta:

1: Ég er að spila í útgáfupartíi Reykjavik Grapevine, ásamt FM Belfast, á Kaffi kúltúra á Hverfisgötu í kvöld. Endilega lítið víð.

2: Ég var að byrja aftur í Listaháskólanum. � vor verð ég bara í nokkrum kúrsum sem mig vantaði, svo hef ég fullt nám á 3. ári næsta haust.

janúar 9, 2007

Linkar

» Skemmtileg grein um nokkrar minnistæðustu ljósmyndir sögunar
» Ég á afmæli 24. júlí næstkomandi, þetta er afmælisgjöfin mín.

janúar 1, 2007

Gleðilegt nýtt ár!

Nýtt ár er komið og með því fylgir heilt nýtt sett af nýjársheitum til að standa ekki við. Eitt af heitunum var að skrifa meira, bæði hérna og á tónlistarblogginu okkar Björns Þórs. �rið byrjar reyndar vel í þeim efnum, þar sem að við Björn vorum að skila inn sitt hverjum árslistanum. Við Björn Þór tókum saman 20 uppáhalds lögin okkar í sitt hvoru horninu, og svo hittumst við og skrifuðum um listana okkar saman.

» B-Town Hit Parade