« Jeff Bridges | Main | Sveinbjörn punktur eitthvað »

Sorgartíðindi

Ég hitti úlling áðan sem bar mér sorgartíðindi.

Úllingnum, sem var mikið niður fyrir, sagði mér, með grátstaf í kverkum, að hið séríslenska fyrirbæri sem er sjoppuhangs unglinga, sé algerlega dottið uppfyrir.

Svo virðist sem að internetið, og þá sér í lagi bloggsíður og MSN, hafi á undanförnum árum gengið að sjoppum dauðum. Nú hanga krakkar ekki lengur fyrir utan Seljavídeó og Sunnutorg og sníkja sígarettur og skyrpa á gangstéttina, heldur sníkja þau sígarettur af hvoru öðru á MSN og skyrpa á kommentakerfin hjá hvoru öðru.

Af er sem áður var.

Comments

Ég grét og hló.

Hvað verður þá um sjoppurnar? Breytast þær í internetsjoppur með pulsulykt?

Eigum við þrír kannski að starta bizniz?

(og ég meinti sko physical sjoppur í húsnæði með tölvum með internettengingu...þó hitt væri kannski hægt líka...minna overhead...)