« Sorgartíðindi | Main | Ég er íslandsmeistari í næntís, frjálsri aðferð. »

Sveinbjörn punktur eitthvað

Mér til mikillar armæðu er ég ekki eini Sveinbjörninn, og ekki nóg með það, ég er ekki einusinni eini Sveinbjörn Punktur eitthvað.

Keppinautar mínir á þessu sviði eru tveir, annarsvegar Sveinbjörn.is, sem bloggar um mótorhjól og myndir af stráknum sínum, og svo Sveinbjörn.org, sem er með stórskemmtilegt blogg, þar sem hann er m.a. með Harmonikkuspurningakeppni og fleira skemmtilegt. Svo hefur hann einnig búið til haug af Makkaforritum sem hann birtir á síðunni sinni, m.a. DOS hermirinn Radnor sem ég notaði einhverntímann til að spila hið snildarlega DOS forrit Skyroads.

Comments

Til hamingju með bræðurna.

Þú ert þó ekki jafn heppinn og ég. Hallar eru útum allt internetið. Allt segi ég.

Post a comment