Soft Rock partí hjá Bobby Breiðfjörð
Soft Rock partí í LHÍ í kvöld!
DJ Bobby Breiðafjörður spilar skútuslagara fram eftir kvöldi.
Látið sjá ykkur.

« febrúar 2007 | Main | apríl 2007 »
Soft Rock partí í LHÍ í kvöld!
DJ Bobby Breiðafjörður spilar skútuslagara fram eftir kvöldi.
Látið sjá ykkur.


Ég rakst á link á ritgerð á blogginu hans Cheap Donuts and Expensive Broccoli: the Effect of Relative Prices on Obesity.
Ég er náttúrulega allt of latur til að lesa ritgerðina, en útgangspunkturinn sem ég greindi úr úrdrætti úr ritgerðinni er þessi: Það er bein leiðni milli hækkandi verðs á hollustufæði og lækkandi verði á skyndibita í bandaríkjunum, og offitu þar í landi.
Hérna á íslandi er hollur matur, og þá sérstaklega grænmeti og aðrar landbúnaðarafurðir, gríðarlega dýr. Ástæðan fyrir þessu virðist helst liggja í háum verndartollum á grænmeti og ávöxtum.
Eins og þið vitið flest þá erum við íslendingar höfðatöluheimsmeistarar í offitu (eins og svo mörgu öðru). Mætti ekki leiða þá að þeirri ályktun að landbúnaðarkerfið okkar sé beinlínis að drepa okkur?
Einn flokkur, Samfylkingin hefur vakið máls á þessu, fyrir þessar kosningar, en það heyrist varla í þeim fyrir hávaðann úr stóriðjuumræðunni. Ég er náttúrulega á því að það eigi að stöðva frekari aðgerðir í þeim málum, en mér finnst leiðinlegt að það kosti okkur það að við þurfum að lifa á hamborgurum og pulsum í fjögur ár til viðbótar.
Kæru lesendur.
Ég vil byrja á að biðjast afsökunar á bloggleti minni undanfarið. Mikið hefur gengið á þannig að ég hef ekki haft mikinn tíma til að peista youtube linkum og nöldra yfir hlutum sem pirra mig, ykkur til ánægju og yndisauka. En nú verður engin breyting þar á.
Með kærri kveðju,
Sveinbjörn Pálsson.
