« Bloggfærsla | Main | Fyndið »

Offita og verð á matvælum

Ég rakst á link á ritgerð á blogginu hans Cheap Donuts and Expensive Broccoli: the Effect of Relative Prices on Obesity.

Ég er náttúrulega allt of latur til að lesa ritgerðina, en útgangspunkturinn sem ég greindi úr úrdrætti úr ritgerðinni er þessi: Það er bein leiðni milli hækkandi verðs á hollustufæði og lækkandi verði á skyndibita í bandaríkjunum, og offitu þar í landi.
Hérna á íslandi er hollur matur, og þá sérstaklega grænmeti og aðrar landbúnaðarafurðir, gríðarlega dýr. Ástæðan fyrir þessu virðist helst liggja í háum verndartollum á grænmeti og ávöxtum.
Eins og þið vitið flest þá erum við íslendingar höfðatöluheimsmeistarar í offitu (eins og svo mörgu öðru). Mætti ekki leiða þá að þeirri ályktun að landbúnaðarkerfið okkar sé beinlínis að drepa okkur?
Einn flokkur, Samfylkingin hefur vakið máls á þessu, fyrir þessar kosningar, en það heyrist varla í þeim fyrir hávaðann úr stóriðjuumræðunni. Ég er náttúrulega á því að það eigi að stöðva frekari aðgerðir í þeim málum, en mér finnst leiðinlegt að það kosti okkur það að við þurfum að lifa á hamborgurum og pulsum í fjögur ár til viðbótar.