a href="http://www.sveinbjorn.com/" accesskey="1">

« mars 2007 | Main | maí 2007 »

apríl 29, 2007

Kosningar

Katrín var að skrifa færslu þar sem hún veltir fyrir sér hvað manneskja með enga fjölskyldu á framfæri, sem er ekki í neinum hagsmunahóp eigi að kjósa.

Ég er mikið búinn að vera að pæla í þessu. Ég er þannig innrættur að ég myndi helst kjósa Samfylkingu eða Sjálfstæðisflokk. Samfylkinguna út af því að ég er bara þannig alinn upp, krati að eðlisfari. Sjálfstæðisflokkinn út af því að þeir eru búnir að vera við völd ýkt lengi, og það er ekki allt farið í rassagat ennþá.

Hinsvegar hefur þetta langa XD góðæri gert það að verkum að mín kynslóð og kynslóðin fyrir neðan hefur enga raunverulega pólitíska sannfæringu, okkur grunar að hlutirnir væru á einhvern hátt verri ef aðrir flokkar en XD og XB væru við völd, en við höfum engar sannannir fyrir því, út af því að við höfum engar sannanir fyrir því.
Þessvegna er ég búinn að vera pæla í því hvort að það væri ekki málið að kjósa VG. Þeir eru klárlega alveg nöts, vilja koma á internetlöggu og banna allt, og ef það er eitthvað að marka sjálfstæðis- og samfylkingarvini mína þá myndi allt fara til andskotans í smá tíma ef þau kæmust til valda. Við höfum það öll víst svo ótrúlega gott að við þurfum ekkert meira, við erum kjósendurnir sem erfitt er að finna gjöf handa út af því að við eigum allt. Nema pólitíska sannfæringu. Fjögur ár af samsteypustjórn frjálslyndra og vinstri grænna myndu veita okkur það.

apríl 27, 2007

Sjálfshjálp hönnuðarins

Daniel Claus var að senda mér svolítið fyndið.

Vorið 2002 missti ég vinnuna, því að fyrirtækið sem ég hafði verið hjá, AdLib, var að fara á hausinn. Á þessum tíma bjó ég með þremur vinum mínum, Togga, Jónasi og Krilla, í einbýlishúsi sem við leigðum á Amtmannsstígnum. Ég eyddi atvinnuleysisdögum mínum í stofunni að spila Tony Hawk og hangandi á Kaupfélaginu, að drekka Latté og reykja sígarettur með nýjasta vini mínum, Daniel Claus.

Við Daniel vorum alltaf að plana og plotta, eins og iðjuleysingjar á kaffihúsum eiga til að gera. Í einhverju flippkasti bjuggum við Daniel til þetta. Fimm árum seinna er þetta ennþá pínu fyndið.

apríl 24, 2007

Hlekkir og tenglar

Nokkrir stuttir linkar:
» 30 skrýtnustu bíóplakötin
» Ég er búinn að vera að hlusta á Kontrapunkt í Peel í allann morgun, frábær tónlist og frábært forrit.
» Ef ykkur vantar að drepa tíma, kannski einn eða tvo sólarhringa, þá mæli ég með flassleiknum Desktop Tower Defence.

apríl 20, 2007

Vrúúúúmmm!

Það eru stótíðindi í lífi mínu að gerast þessa dagana. Fyrir nokkrum dögum hóf ég ökunám í annað sinn. Ég byrjaði fyrst að læra að keyra þegar ég var 19 ára, en ýmsar sviftingar (hætti í vinnu, byrjaði í skóla, ökukennarinn hætti að kenna sökum prófskandals, ökukennarinn lést í umferðarslysi), gerðu það að verkum að ég lauk aldrei prófi.

Síðan þá hef ég verið að ýta þessu á undan mér, hef alltaf verið á leiðinni að gera þetta í næsta mánuði, þarnæsta, eða eftir smá. Nú er stundin s.s. loksins runnin upp, og ef allt gengur eftir verð ég kominn með ökuskirteini í júní.

Í fyrsta tímanum keyrði ég um skerjafjörðinn, rúntaði um krappar beygjur á gífurlegum hraða (25) og var næstum búinn að setja bílinn í þriðja gír. Næstum því. Annar tími var svo í gær, og ég náði alveg upp í fjórða gír þá. Ég á framtíð fyrir mér í akstursíþróttum, ég bara veit það.

apríl 19, 2007

Íbúð til leigu í New York

Minn kæri vinur Halli Turk bað mig að plögga þessu fyrir sig:


Stúdíóbúð til leigu á Manhattan, 1. júní til 30. ágúst
Áhugasamir sendi tölvupóst á: email@icomefromreykjavik.com

( ég set upp vefsíðu fyrir íbúðina bráðum, með myndum og rjúkandi smákökulykt )


Hæ elskulegir vinir mínir, nær og fjær.

Ég verð líklega á Íslandi í allt sumar, frá júní til september, og því verður íbúðin mín hér í New York tóm allan þann tíma. Ég er með fastan leigusamning, og vil endilega finna yndislega Íslendinga sem vilja leigja íbúðina á þessu tímabili.

Helst vildi ég finna leigjanda sem verður í New York nær allt sumarið, eða því sem næst. Annars er ég tilbúinn að leigja hana áhugasömum og hjartagóðum sem ætla sér að heimsækja New York í einhvern tíma, stuttan eða langan.

Íbúðin er að sjálfsögðu á frábærum stað á frábærri Manhattan, á 33. stræti og 3. avenue, í hverfi sem heitir Murray Hill [ sjá kort ]. Hér er fullt af allskyns veitingastöðum frá öllum hornum alheimsins, tveir ilmandi ferskir súpermarkaðir (opnir 24/7) eru sitthvorumegin við götuna, neðanjarðarlestarstöð í 2ja mínútna fjarlægð, apótek á næsta götuhorni, stórt bíó og bókabúð einni götu frá, og margt fleira sem gleður hjartað mitt á hverjum degi. Stutt labb á Herald Square, þar sem þú finnur Macy's ofurverslunarmiðstöðina, ásamt Manhattan Mall, Victoria's Secret, H&M, Gap, Sephora snyrtivörubúðinni, Footlocker skóbúðinni, og endalausu öðru. Fyrir allt annað er hægt að taka lestina (sem er ó svo nálægt) eða hægt að hoppa uppí misglansandi leigubíla sem stoppa beint fyrir utan (eða hvar sem þú vilt).

Íbúðin er stúdíóíbúð með parketi, inngengnu flísalögðu eldhúsi, inngengnum fataskáp (walk-in closet), og baðherbergi með glimrandi baðkari. Öll húsgögn keypti ég þegar ég flutti hingað fyrir ári, þ.á.m. er hátízku sjónvarp og DVD-spilari, kapal-internettenging, og hellingur af sjónvarpsstöðvum fyrir áhugamenn um auglýsingar. Svo er rúmið mitt fáránlega þægilegt, Tempur Pedic, þannig að allir leigjendur snúa heim til Íslands með læknað bak. Þetta verður einskonar heilsu-verslunarferð.

Aftur:
Stúdíóbúð til leigu á Manhattan, 1. júní til 30. ágúst
Netfangið mitt er: email@icomefromreykjavik.com

Elsku lesandi, nú þarf ég hjálp þína. Í ódauðlegu orðum eins frægasta New Yorkarans, 'start spreading the news', og segðu öllum sem þú getur.

Elsk,
Halli

Gæði internetsins

Ég kynntist einusinni stelpu á netinu í gegnum eitthvað svona spjallkerfi. Það var alltaf gaman að spjalla við hana onlæn, en ég hitti hana aldrei í raunveruleikanum, (eða "kjötheimum", eins og hún Maggabest orðaði þetta skemmtilega um daginn), í mörg ár. Ég reyndar sá hana tvisvar-þrisvar inná einhverjum börum og skemmtistöðum, en ég var feiminn og þorði aldrei að fara yfir og segja "hæ, við erum alltaf að tjatta á internetinu". Síðan reyndar gerðist það að við spjölluðum saman eftir langt hlé og ákváðum að fara á deit. Það var ótrúlega furðuleg reynsla að eyða tíma saman með einhverjum sem þú þekkir frekar vel, en kannast samt ekki einu sinni við röddina hennar. Deitin tvö voru skemmtileg en pínu weird, þannig að það kom aldrei neitt upp úr krafsinu, en við erum samt orðnir "kjötheima" vinir í dag og það er alltaf gaman að rekast á hana.

Fyrir stuttu var ég á bar og rakst á aðra vinkonu mína. Hana kynntist ég á einhverju kaffihúsi með vinum mínum, og við héngum oft saman fyrir nokkrum árum. Undanfarin tvö-þrjú ár höfum við samt lítið sem ekkert hist, en við spjöllum saman jafnvel oft í viku á MSN, þegar vel liggur á. Þar sem við erum alltaf í sambandi, líður mér svona yfirleitt eins og að hún sé með betri vinum mínum, en ég fattaði það þegar ég rakst á hana, að undanfarinn 2 - 3 skipti sem við höfum hist, höfum við bæði frekar weird og feimnisleg. Nokkurnveginn eins og við þekkjumst, en samt ekki. Eða voðalega lítið, allavega. Ef ég hefði rekist á hana eftir að hafa ekki heyrt í henni í marga mánuði, þá hefðu þetta eflaust verið fagnaðarfundir, en í staðinn var þetta bara skrítið.

Sama kvöld hitti ég stelpu, sem sagði mér að hún væri ekki með tölvu heima hjá sér. Hún sagði mér að sölumaður frá Hive hefði hringt í sig um daginn, og þegar hún tjáði honum að hún ræki tölvulaust heimili, fór hann að skellihlæja. Fyrir nokkrum árum síðan hefði ég verið algerlega sammála gaurnum, enda hefur mér þóttt hálf óþægilegt að vera í lengri tíma netlaus. Það er svolítið eins og að ef það er ekki virk adsl tenging á heimili mínu, þá sé ég að missa af einhverju. Undanfarið hef ég samt verið að átta mig á því að virk adsl tenging á heimili mínu gerir það frekar að verki að ég missi af hlutum, en komi í veg fyrir það.

Einn vinur minn sagði mér frá því í gær að hann hafi misst nettengingu sína fyrir skömmu. Í kjölfarið á því komst hann að því að hann væri aftur byrjaður að nenna að lesa bækur, elda og bjóða fólki í heimsókn. Stelpan sem ég spjallaði við á Barnum sagði svipaða sögu.

Í byrjun júlí hætti ég hjá JL, þar sem ég er að klára listaháskólann næsta vetur, og ætla að einbeita mér að því. Á sama tíma er ég að pæla í að finna mér einhverja litla vinnuaðstöðu útí bæ og flytja allt tæknidraslið mitt þangað. Hérna heima bíða mín svo um 20 ólesnar bækur, 2000 eða svo vínylplötur sem ég hef ekki hlustað á í mörg ár, herbergi sem ég tek ekki nógu mikið til í, skissubækur sem ég er ekki búinn að teikna nóg í og fjölmörg mataboð sem ég hef ekki komist í að halda út af því að ég var að lesa póstinn minn og tékka á MySpace. Og að gúgla eitthvað sem ég var að hugsa um þá stundina. Það gerist allavega voðalega sjaldan eitthvað merkilegt þegar maður er á netinu.


Ekki misskilja mig. Mér finnst internetið ennþá vera frábært. Ég er bara aðeins farinn að endurhugsa það hvort að ég vilji hafa það heima hjá mér.

apríl 13, 2007

Hitt og þetta

Ég var að skrifa svaka ferðasögu frá Ibízafirði á breiðholtsblogginu. Ég mæli með að þið tékkið á öllum böndunum sem koma fyrir í sögunni, það er ótrúlega mikið skemmtilegt í gangi í íslenskri tónlist í dag.

Svo mæli ég með softrock-þemuðu Grapevine partíi á Pravda á morgun föstudag. Mjúkasti plötusnúður norðurlandanna, Bobby Breiðholt, spilar skúturokk og Greipvæn menn gefa eitthvað glundur fyrir þá sem fíla þannig.

apríl 10, 2007

Sónar 2007

Nokkur bönd sem tilkynnt hafa verið á Sónar 2007:


Black Devil Disco Club
Justice
DJ Mehdi
Uffie
Beastie Boys
Devo
Junior Boys
Rahzel
Simian Mobile Disco
Altern8

Hver kemur með á Sónar?