Gæði internetsins
Ég kynntist einusinni stelpu á netinu í gegnum eitthvað svona spjallkerfi. Það var alltaf gaman að spjalla við hana onlæn, en ég hitti hana aldrei í raunveruleikanum, (eða "kjötheimum", eins og hún Maggabest orðaði þetta skemmtilega um daginn), í mörg ár. Ég reyndar sá hana tvisvar-þrisvar inná einhverjum börum og skemmtistöðum, en ég var feiminn og þorði aldrei að fara yfir og segja "hæ, við erum alltaf að tjatta á internetinu". Síðan reyndar gerðist það að við spjölluðum saman eftir langt hlé og ákváðum að fara á deit. Það var ótrúlega furðuleg reynsla að eyða tíma saman með einhverjum sem þú þekkir frekar vel, en kannast samt ekki einu sinni við röddina hennar. Deitin tvö voru skemmtileg en pínu weird, þannig að það kom aldrei neitt upp úr krafsinu, en við erum samt orðnir "kjötheima" vinir í dag og það er alltaf gaman að rekast á hana.
Fyrir stuttu var ég á bar og rakst á aðra vinkonu mína. Hana kynntist ég á einhverju kaffihúsi með vinum mínum, og við héngum oft saman fyrir nokkrum árum. Undanfarin tvö-þrjú ár höfum við samt lítið sem ekkert hist, en við spjöllum saman jafnvel oft í viku á MSN, þegar vel liggur á. Þar sem við erum alltaf í sambandi, líður mér svona yfirleitt eins og að hún sé með betri vinum mínum, en ég fattaði það þegar ég rakst á hana, að undanfarinn 2 - 3 skipti sem við höfum hist, höfum við bæði frekar weird og feimnisleg. Nokkurnveginn eins og við þekkjumst, en samt ekki. Eða voðalega lítið, allavega. Ef ég hefði rekist á hana eftir að hafa ekki heyrt í henni í marga mánuði, þá hefðu þetta eflaust verið fagnaðarfundir, en í staðinn var þetta bara skrítið.
Sama kvöld hitti ég stelpu, sem sagði mér að hún væri ekki með tölvu heima hjá sér. Hún sagði mér að sölumaður frá Hive hefði hringt í sig um daginn, og þegar hún tjáði honum að hún ræki tölvulaust heimili, fór hann að skellihlæja. Fyrir nokkrum árum síðan hefði ég verið algerlega sammála gaurnum, enda hefur mér þóttt hálf óþægilegt að vera í lengri tíma netlaus. Það er svolítið eins og að ef það er ekki virk adsl tenging á heimili mínu, þá sé ég að missa af einhverju. Undanfarið hef ég samt verið að átta mig á því að virk adsl tenging á heimili mínu gerir það frekar að verki að ég missi af hlutum, en komi í veg fyrir það.
Einn vinur minn sagði mér frá því í gær að hann hafi misst nettengingu sína fyrir skömmu. Í kjölfarið á því komst hann að því að hann væri aftur byrjaður að nenna að lesa bækur, elda og bjóða fólki í heimsókn. Stelpan sem ég spjallaði við á Barnum sagði svipaða sögu.
Í byrjun júlí hætti ég hjá JL, þar sem ég er að klára listaháskólann næsta vetur, og ætla að einbeita mér að því. Á sama tíma er ég að pæla í að finna mér einhverja litla vinnuaðstöðu útí bæ og flytja allt tæknidraslið mitt þangað. Hérna heima bíða mín svo um 20 ólesnar bækur, 2000 eða svo vínylplötur sem ég hef ekki hlustað á í mörg ár, herbergi sem ég tek ekki nógu mikið til í, skissubækur sem ég er ekki búinn að teikna nóg í og fjölmörg mataboð sem ég hef ekki komist í að halda út af því að ég var að lesa póstinn minn og tékka á MySpace. Og að gúgla eitthvað sem ég var að hugsa um þá stundina. Það gerist allavega voðalega sjaldan eitthvað merkilegt þegar maður er á netinu.
Ekki misskilja mig. Mér finnst internetið ennþá vera frábært. Ég er bara aðeins farinn að endurhugsa það hvort að ég vilji hafa það heima hjá mér.
Comments
Ég man að þér fannst það ágætt þegar þú varst laus við internetið einhverntímann í fyrra.
Og: þú mátt skrifa meira svona.
Posted by: Halli | 19.04.07 09:50
Eg tok tha akvordun ad vera ekki med net i nyju ibudinni minni og hefur lif mitt aldrei verid betra. Eg vona ad allir profi thetta og muni hvad thad var gaman thegar madur var unglingur og var alltaf ad gera eitthvad. Eitthvad annad en ad hanga a netinu. Og til hamingju med ad vera ordin full-time nemi, thad eru anaegjulegar frettir :)
Posted by: gulla | 19.04.07 21:25
Þetta er rosalega rétt hjá þér.... ég eyði dögum samna á netinu að gera ekkert en get ekki farið á snjóbretti þar sem að ég á að vera að læra....læra á hvað myspace...nei
Anyway flottur pistill
Posted by: Reynar | 19.04.07 21:50
næsvonn!
ég reyndar nenni ekkert mega mikið að hanga á netinu þegar ég er búin að vera við tölvu allan daginn.. en á móti kemur þá eyði ég tímanum í að glápa á sjónvarpsefni sem ég dánlóda heima hjá mér meðan ég er í vinnunni..
kannski.. ef maður væri ekki með net.. þá myndi maður sleppa því að hanga á netinu og sleppa því að dánlóda og eyða þá kvöldunum í eitthvað uppbyggilegra en vídjógláp?
Posted by: katrín | 20.04.07 12:26
Laserdisksgláp, kannské?
Posted by: Halli | 21.04.07 09:08