Sjálfshjálp hönnuðarins
Daniel Claus var að senda mér svolítið fyndið.
Vorið 2002 missti ég vinnuna, því að fyrirtækið sem ég hafði verið hjá, AdLib, var að fara á hausinn. Á þessum tíma bjó ég með þremur vinum mínum, Togga, Jónasi og Krilla, í einbýlishúsi sem við leigðum á Amtmannsstígnum. Ég eyddi atvinnuleysisdögum mínum í stofunni að spila Tony Hawk og hangandi á Kaupfélaginu, að drekka Latté og reykja sígarettur með nýjasta vini mínum, Daniel Claus.
Við Daniel vorum alltaf að plana og plotta, eins og iðjuleysingjar á kaffihúsum eiga til að gera. Í einhverju flippkasti bjuggum við Daniel til þetta. Fimm árum seinna er þetta ennþá pínu fyndið.
Comments
Haha, ég man eftir þessu og þetta er svo sannarlega sniðugt. Góðir tímar.
Posted by: gulla | 28.04.07 03:34
Þetta er heví fyndið
Posted by: Jón Trausti | 30.04.07 18:51
Enda snillingar og ekkert annað
Posted by: Krilli | 03.05.07 02:32