« Íbúð til leigu í New York | Main | Hlekkir og tenglar »

Vrúúúúmmm!

Það eru stótíðindi í lífi mínu að gerast þessa dagana. Fyrir nokkrum dögum hóf ég ökunám í annað sinn. Ég byrjaði fyrst að læra að keyra þegar ég var 19 ára, en ýmsar sviftingar (hætti í vinnu, byrjaði í skóla, ökukennarinn hætti að kenna sökum prófskandals, ökukennarinn lést í umferðarslysi), gerðu það að verkum að ég lauk aldrei prófi.

Síðan þá hef ég verið að ýta þessu á undan mér, hef alltaf verið á leiðinni að gera þetta í næsta mánuði, þarnæsta, eða eftir smá. Nú er stundin s.s. loksins runnin upp, og ef allt gengur eftir verð ég kominn með ökuskirteini í júní.

Í fyrsta tímanum keyrði ég um skerjafjörðinn, rúntaði um krappar beygjur á gífurlegum hraða (25) og var næstum búinn að setja bílinn í þriðja gír. Næstum því. Annar tími var svo í gær, og ég náði alveg upp í fjórða gír þá. Ég á framtíð fyrir mér í akstursíþróttum, ég bara veit það.

Comments

Thad er aldeilis oldugangur i lifi thinu thessa dagana! Eg er i sama gir med okunamid, roadtrip naesta sumar??!

Það stefnir allt í það...

Það stefnir allt í það...

Nú líst mér á Svenna minn. Koddí spyrnu.

Þú líka Gulla. Útsláttarmót uppá líf og dauða.

Minn ökukennari dó líka í bílslysi.
Hét þinn Vxxxxx?
það eru svoldið mörg ár síðan hann féll frá.....

Svenni: það er þá bara eitt í stöðunni:

Live2Cruise.com

Neonljós, Hyundai Accent, og pulsa með öllu! Þú og Gulla á móti mér og Bobby Burnout!

Reynar: Sami gaur. Magnaður karakter, alveg hreint.

Post a comment