a href="http://www.sveinbjorn.com/" accesskey="1">

« apríl 2007 | Main | júní 2007 »

maí 31, 2007

Danmörk

Ef þú ert staddur/stödd í Danmörku á morgun, þá vil ég minna á tónleika FM Belfast, Gus Gus, Jack Schidt og Kasper Bjorke á VEGA í Kaupmannahöfn. Partíið byrjar kl. 8, tónleikar hefjast kl. 9. Ekki missa af nýja lausráðna kúabjölluleikaranum í FM Belfast, ég hef heyrt að hann sé Jimi Hendrix kúabjöllunar.

» Frekari upplýsingar hér. Þú getur keypt miða hér.

maí 27, 2007

Nýtt íslenskt hönnunarblogg

Ragnar Freyr, maðurinn á bak við Icelandic National Team hönnunarvefinn, var að opna nýtt hönnunarblogg:

» Createmake

maí 21, 2007

Kosninganótt

Það var eitthvað voðalega vinsælt að flippa í ríkissjónvarpinu á kosninganótt. Jói úr vinnunni djókaði í sjónvarpsfréttamanni, og í partíinu sem ég var í vorum við að dunda okkur að senda rafpósta. Haukur segir frá þeim djók í nýjasta tölublaði Reykjavik Grapevine.

maí 19, 2007

Skemmtilegt

magnað

Fyrir þá sem þekkja eitthvað til framúrstefnutónlistar er þetta frekar magnað:

» John Cage kemur fram í bandarískum skemmtiþætti 1960

» Sinfóníuhljómsveit flytur 4'33 eftir Jon Cage

» Meira um John Cage

maí 16, 2007

B-town Afmælis Hit Parade

B-Town Hit Parade, tónlistarbloggið okkar, á árs afmæli um þessar mundir. Í tilefni af því höldum við afmælisviku í þessarri viku. Meðal þess sem við gerum í vikunni er að bjóða gestapennum að skrifa á bloggið. Færslur fyrstu gestapennana, þeirra Dr. Gunna og Árna Japan, eru komnar í loftið, og fleirri skemmtilegar eru á leiðinni.

Kíkið endilega við.

Að vörva

"Að vörva"

Árni Rúnar var að kenna mér nýtt orð í dag. Þegar hann var í Foldaskóla bjuggu hann og vinur hans, sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu, til leik. Leikurinn var byggður á myndbandi The Verve, við lagið Bittersweet Symphony. Í myndbandinu þrammar Richard Ashcroft, söngvari The Verve, þráðbeint í gegnum þvögu af fólki. Eins og gengur og gerist þegar þú gengur beint áfram í gegnum mannþröng þá rakst hann í alla, en honum var alveg sama því hann var Richard Ashcroft, að syngja Bittersweet Symphony í myndbandi. Auk þess var hann ógeðslega fúll yfir einhverju.

Leikurinn gekk út á það að labba þráðbeint í gegnum allan Foldaskóla, án þess að víkja nokkuð út af leið. Ótvíræður sigurvegari leiksins var einhver vinur Árna sem náði að vörva alla leið, í stóru frímínútum, og vörvaði meðal annars beint á aðstoðarskólastjóra, og hélt samt brautinni áfram.

Að vörva er góð skemmtun. Þó mæli ég ekki með að það sé gert eftir klukkan eitt aðfararnótt laugardags og sunnudags í miðbæ Reykjavíkur, nema þú sért þess þó fjallvaxnari.

(ef þið viljið tékka á fleiri nýyrðum vil ég benda á bloggið hans Árna Kristjánssonar, en hann birtir nýyrði í hverri viku)

Haukur í Reykjavík

Vissuð þið að Eiríkur Hauksson og Haukur í Reykjavík! eru feðgar?

Haukur var mjög ungur þegar hann átti hann. Og Eiríkur var mjög gamall þegar hann fæddist.

maí 11, 2007

Workout

Tölvan mín, sem er ekkert svo gömul, er orðin svifasein og löt. Hún rétt dröslast áfram. Því hef ég ákveðið að fara í gagnamegrun. Ég stefni á að koma mér niður fyrir 100 gígabæt á innan við átta vikum. Ég veit að það getur verið áfall fyrir systemið að missa svona mikið af gögnum á svona stuttum tíma, en það er bara kominn íþróttaandi í mig þannig að ég ætla að láta slag standa.

maí 9, 2007

Ferðasumar

Svakalegur ferðamánuðir planaður í júní.

Ég verð í Köben 1-2 júní, á Iceland Airwaves upphitunartónleikum með m.a. FM Belfast og Gus Gus. Svo fer ég til London 9.-12. júní að heimsækja Sigga og Ívan og þaðan fer ég til Barcelona, á Sónar, og verð 12.-19. júní. 19.-30. júní verð ég svo í heimsborginni Reykjavík að spóka mér. Ef þið eruð á einhverjum af þessum stöðum á sama tíma, látið endilega vita.

maí 2, 2007

FM Belfast

Ég er á leiðinni upp á sirkús eftir smá að spila stutt upphitunarsett fyrir FM Belfast. Kíkið endilega við.