magnað
Fyrir þá sem þekkja eitthvað til framúrstefnutónlistar er þetta frekar magnað:
» John Cage kemur fram í bandarískum skemmtiþætti 1960
« B-town Afmælis Hit Parade | Main | Skemmtilegt »
Fyrir þá sem þekkja eitthvað til framúrstefnutónlistar er þetta frekar magnað:
» John Cage kemur fram í bandarískum skemmtiþætti 1960
Comments
Ég legg til ballettinn "Allir sitja heima".
Posted by: bob | 20.05.07 02:49
Ótrúlega langt á undan sinni samtíð hann John Cage.
Skemmtileg sagan um Bruce Nauman þegar hann var beðinn um að taka þátt í sýningu með listamönnum sem höfðu orðið fyrir áhrifum frá John Cage; hann sendi gallerínu fax sem á stóð „Fat chance John Cage“ og vísaði þar mjög augljóslega í áhuga John Cage á tilviljunum.
Galleríið tók því þannig að Bruce væri að afþakka boðið um að taka þátt en í raun var þetta hans framlag til sýningarinnar.
Posted by: bjadddni | 25.05.07 22:15
Haha. Ótrúlega viðeigandi.
Posted by: Sveinbjörn Pálsson | 25.05.07 22:34
Horfði á skemmtiþáttarinnleggið hans Johns um daginn, og pirraðist yfir því hvað helvítis fríkið væri ólgandi í tilgerðinni.
Pssft donk ... pssft. Klínk, donk?
Seinna sama dag hringdi ég í Hive. Meðan ég beið á línunni gaf kerfið frá sér sérkennilegt snark og suð. Pssft donk ... pssft. Klínk, donk? Áttaði mig á því að það var fallegt! Músíg! Hlustaði á það eins og það væri verk eftir Keidsjarann.
Alvöru list er þannig að maður kannski eða kannski ekki fattar draslið þegar maður er að horfa eða hlusta á verkið, en svo kemur það seinna og bítur mann í rassinn þegar maður er kominn út í lífið, og setur allt í samhengi. Búmm. Pssft donk.
Posted by: Krilli | 29.05.07 11:52