Workout
Tölvan mín, sem er ekkert svo gömul, er orðin svifasein og löt. Hún rétt dröslast áfram. Því hef ég ákveðið að fara í gagnamegrun. Ég stefni á að koma mér niður fyrir 100 gígabæt á innan við átta vikum. Ég veit að það getur verið áfall fyrir systemið að missa svona mikið af gögnum á svona stuttum tíma, en það er bara kominn íþróttaandi í mig þannig að ég ætla að láta slag standa.
Comments
Eigum við að senda tölvurnar okkar saman í megrun? Mín mætti alveg missa svona 30 gíg....
Posted by: Jón Trausti | 11.05.07 03:06
Já, við ættum að stofna svona tölvu-heilsuklúbb.
Posted by: Sveinbjörn Pálsson | 11.05.07 03:12
Ég er kannski ekki þungur í kílóum en í stafrænum megabætum talið er ég algjör hlussa!
Posted by: Árni Plúseinn | 11.05.07 03:17
Tölvan þín er með feitann rass.
Posted by: Sveinbjörn Pálsson | 11.05.07 03:17
Músin þín er feit.
Posted by: Halli | 11.05.07 15:34
Þú ert með feitann skóþveng.
Posted by: Sveinbjorn Palsson | 11.05.07 15:47
Sama hvert ég fer?
Posted by: Halli | 12.05.07 17:51