« Danmörk | Main | Danmörk »

London 2012

Bloggheimur hönnunar er búinn að vera logandi í dag út af nýju útliti Ólympíuleikanna 2012 í London. Viðbrögðin eru búin að vera ótrúlega hörð, og næstum allir virðast vera sammála um að þetta sé glatað.

Þessi umræða minnir mig reyndar mikið á viðbrögðin á spjallborði íslenska hönnunarvefsins sáluga, Icelandic National Team, sem myndaðist í hvert skipti sem fyrirtæki kynnti nýja ímynd sína. Það kepptust allir alltaf við að drulla yfir nýjar ímyndir fyrirtækin, og ein hörðustu viðbrögð sem ég man eftir var nýtt merki KB banka. Ég var sjálfur í liðinu sem hraunaði yfir það, mér fannst það glatað, einfeldingslegt og gamaldags. Núna nokkrum árum seinna er ég búinn að átta mig á að þetta er tímalaust og fallegt merki, sem vinnur á með hverju árinu sem líður.

Það verður seint sagt um nýtt merki ólympíuleikana að það sé tímalaust, en ég ætla samt að skipa mig í þann litla hóp sem fílar það. Mér finnst það reyndar pínu sjoppulegt og gelgjulegt, en ég hrífst samt af því að þau hafi þorað að hvika út af braut einsleitra merkja sem hafa einkennt hátíðina undanfarin ár.

Comments

Nu er eg sammala ther Svenni.

Ég var ekki að fíla það fyrst en mér finnst það drullufínt núna. Loksins eitthvað aðeins öðruvísi.

Miklu miklu betra en t.d. vinsælasta útgáfan af lógóinu á BBC heimasíðunni:

http://newsimg.bbc.co.uk/media/images/43017000/jpg/_43017451_richard_voysey203.jpg

Mér finnst þetta alveg æðslegt bara. Hevví Memphis fílingur á þessu og allt voða flott. Alveg svakalega "það sem er að ske í dag"

En það er auðvitað vandamálið. Þessir leikar eru samkvæmt vasareikninum mínum eftir fimm ár. Það er mikill séns að þetta verði hundgamalt og léleg minning um "new rave sirka 2007".

Post a comment