Blog Party
Ég er hættur að blogga.
Það er víst ekki kúl að blogga lengur. Þannig að ég er hættur. Meira að segja hverfisbarstýpan Gilzenegger hætti að blogga fyrir mörgum mánuðum síðan, þannig að þetta dæmi er alveg búið.
Hinsvegar er orðið mjög chic að eiga Blogue. Árni Rúnar var að segja mér frá því, að allir sem eru fínir og flottir eiga Blogue í dag. Egill Ólafsson og Dorrit Mussaieff voru að opna Blogue saman. Sævar Karl forritaði það víst fyrir þau.
Fyrsta blogue færslan mín er um afmælið mitt, síðastliðinn þriðjudag.
Að venju skreið ég á fætur allt of seint, og skrönglaðist uppá skrifstofu á Skólavörðustíg. Árni Rúnar hringdi í mig þegar ég var nýmættur og sagðist vera með pakka handa mér. Hann mætti svo stuttu seinna, þar sem ég sat hress og kátur og var að maska út líkkistur í photoshop, og færði mér geisladisk í fallega handskreyttum umbúðum sem Lóa, unnusta hans, hafði útbúið (hún er líka með blogue, enda er hún fínn listamaður sem sýnir í galleríinu hennar Ingibjargar Pálmadóttir). Á disknum voru sjö af uppáhalds lögunum mínum, sem Árni var búinn að overdubba kúabjöllu yfir í stúdíóinu.
Svo fór ég með Mömmu og Pétri í´IKEA, í þeim tilgangi að finna handa mer hillu í afmælisgjöf. Á leiðinni út sá ég að þau voru að selja Daimtertur og annað sænskt gúmmelaði, og ég fékk þá frábæru hugmynd að halda sænskt kökupartí kl. 8 um kvöldið.
Ég keypti hrúgu af sænsku bakkelsi og hringdi í slembiúrtak af þeim sem voru í dialed numbers í símanum mínum. Vinir mínir eru algerir lúðar. Árni hafði ekki tíma til að mæta út af einhverju fjölskyldustússi, Halli komst en ekki fyrr en seint út af því að hann þurfti að skutla einhverjum farangri útum allann bæ og svona gekk þetta. Á endanum var ég búinn að hringja sautján símtöl, og var frekar öruggur með það að það myndu mæta svona fimm manns. Ég heyrði svo í Söru, hún vildi endilega borða með mér Sushi áður en að partíið byrjaði. Við ætluðum að borða hálf sjö, þannig að ég gæti verið kominn heim nokkuð rúmlega fyrir partíið.
Klukkan sjö var Sara enn ekki mætt. Ég hringdi í hana aftur, hún var eitthvað að bíða eftir Ella, sem hafði skroppið á American Style. Ég var orðinn frekar pirraður. Sara mætti svo loksins klukkan tuttugu mínútur í átta. Þá var hún búin að breyta planinu, var búin að panta einhvern mat á Tapas barnum, ætlaði að pikka hann upp og borða heima.
Sara þurfti að koma við eitthvað, og var heillengi á leiðinni niður á Tapas. Ég var orðinn helpirraður á umstanginu öllu. Við keyrðum fram hjá veitingastaðnum, og upp vesturgötuna. Ég sá Halla og Jónda standandi fyrir utan skrifstofu Grapevine. Ég bað Söru um að stoppa bílinn, ætlaði að skamma Halla fyrir að vera í einhverju hangsi þegar hann átti klárlega að vera að drífa sig að skutlast með töskur, þannig að hann gæti komist í ammæli. Sara fann ekkert bílastæði, keyrði fram hjá fullt af stæðum, og þegar við komum loksins niður á Vesturgötu voru Halli og Jóndi farnir.
Við komum að Tapasbarnum, Sara fór inn að sækja mat, og ég spjallaði við Lindu vinkonu, sem ég rakst á fyrir utan.
Þegar ég var búinn að standa þarna í nokkrar mínútur kom Sara út aftur, með frítt föruneyti vina minna í slagtogi, öll öskrandi "Surprise!"
Kemur í ljós að Halli, Jóndi, Árni, Sara og fleiri vinir mínir höfðu verið að plana óvænta afmælisveislu. Þegar ég fór að hringja í fólk og bjóða í kökuboð varð víst uppi fótur og fit. Þau voru búin að plana veisluna sína á sama tíma og ég var að bjóða fólki. Það var líka meiriháttar hausverkur fyrir þau að finna út hverjum ég var að bjóða, hafa upp á númerum þeirra og segja þeim að mæta á Tapas frekar en á Njálsgötuna.
Partíið var stórskemmtilegt. Fín mæting, og ég fékk frábærar gjafir. Dröfn gaf mér skútu-stuttbuxur, og svo fékk ég bestu afmælisgjöf allra tíma. Halli, Sara, Bjölli, Árni K, Arni R, Lóa og Eldar voru búin að teikna myndir af mér, sem Sara vann svo og prentaði á bol.
Eftir matinn á Tapas kíktum við á Njálsgötuna, þar sem að Daimkaka var borðuð. Í lok kvölds fór ég svo í bíltúr með Söru og Halla niður á höfn. Sjórinn var rennisléttur og útsýnið var ótrúlega fallegt, jafnvel pínu væmið. Svolítið eins og þessi dagur, og þessi fyrsta Blogue færsla mín.

Comments
Til hamó með amó kútur.
Posted by: bob | 02.08.07 10:02
til hamingju með afmælið.
Posted by: ingvi | 03.08.07 23:45