Dregur til tíðinda!
Hæ.
Fyrirgefið bloggleti. Ég lofa bót og betrun og allt það.
Ég hef lítið að segja. Allt gott að frétta þessa dagana. DJ karrírið komið í fullt blast. Var að spila á fimmtudags- og föstudagskvöldið, og vel gekk. Ítalókvöldið var sérstakt söksess, það var brjáluð stemmning allann tímann, og það varð allt vitlaust undir endann, dansað uppi á borðum og allt. Við Haraldur ætlum að endurtaka þetta í ágústmánuði, staðsetning og tími verða tilkynnt síðar.
Annars dregur það helst til tíðinda af internetinu að hún Lóa er byrjuð að pósta skemmtilega hluti á Flickr. Þið getið skoðað það hér. Það eru alltaf fleiri og fleiri skemmtilegir myndastraumar að bætast við á Flickr, ég mæli sérstaklega með straumnum hans Björns Þórs. Drengurinn er klár.