Ítaló Diskó

Ykkur er öllum boðið í Italódiskó partí Á barnum á Fimmtudanskvöld!
Við Halli ætlum að spila nokkur af okkar uppáhalds Ítaló lögum fyrir trylltu dansgólfi.
Hér eru helstu upplýsingar um kvöldið:
Halli (AKA DJ Shy Like An Angel) hefur ferðast um heiminn og vakið á sér athygli í vinsælustu næturklúbbum New York, Los Angeles og Napólí. Hann hefur einnig komið til Marmaris. Hann hefur náð nokkrum frábærum taktskiptingum.
Svenni (AKA DJ Forever Lover) er einn af efnilegustu íslensku ítalóplötusnúðunum. Hann er með próf frá plötusnúðafélagi íslands, og hefur spilað á fjölmörgum diskótekum og skemmtunum. Syrpur eftir hann hafa innihaldið lög víðsvegar að úr heiminum.
Klæddu þig upp og komdu og fáðu þér mergjaðan alvöru ítalskan kokteil, og stígðu nokkur dansspor. Það verður kveikt á diskókúlunni! Freestyle-dansarar (sigurvegarar og verðlaunahafar) velkomnir.
Hér eru nokkur Youtube vídeó með skemmtilegu ítalói:
Og þið getið sótt helling af ítaló lögum á Kontrapunkt blogginu hans Halla.
Comments
Gaaaaaman.
Posted by: Halli | 13.07.07 14:41