« Teiknarafyndn #306 | Main | Fjölmennum á Iðnó í kvöld »

Helgin!

Hvort sem þú ert í danmörku eða á íslandi þá er ég með helgina lænaða upp fyrir þig.

Fyrir dansþyrsta danmörkubúa þá mæli ég með FM Belfast á tónlistarhátíðinni Public Service sem haldin verður af danska ríkisútvarpinu í nýju útvarpshúsi þeirra á föstudaginn. Kl. 20 stíga Hairdoctor á svið, en FM Belfast eru kl. 21.30. Við vorum á æfingu áðan og mér sýnist á öllu að þetta verði nokkuð sérstakir tónleikar. Þið getið keypt miða hér, en frekari upplýsingar fáið þið hér (á dönsku).

Ef þið eruð hinsvegar á íslandi, þá gefst ykkur tækifæri á að skrifa nafn ykkar í mannkynssöguna. Diljá og Örn Alexander Ámundabörn eru að undirbúa það að slá heimsmet í hvísluleik. Dagskráin hefst kl. 14. í garði Listasafns Einars Jónssonar, á skólavörðuholti, en leikurinn sjálfur hefst kl. 15.

Það þarf vel yfir 1000 þáttakendur til að slá fyrra met, þannig að ef þú lest þetta, og ert í bænum, þá er skyldumæting.

Frekari upplýsingar um hvísluleik hér.

Comments

1100 manns í hvísluleik, og restina af heiminum á tónleikana. Komaso!

Ég væri til í að koma til Danmerkur. Þetta er í Kaupmannahöfn, er það ekki annars?

1100 manns í hvísluleik, og restina af heiminum á tónleikana. Komaso!

Ég væri til í að koma til Danmerkur. Þetta er í Kaupmannahöfn, er það ekki annars?

JÁ ALLIR Í EINARSGARÐ!! vei vei vei

Finnst að einhver ætti að skila lyklaborðinu svo þú getir skrifað smá meira...

Post a comment