Fjölmennum á Iðnó í kvöld
Ef þú hefur ekki frétt af tónleikunum í kvöld þá býrðu sennilega í helli. Með ekkert internet. Ég reikna ekki með að komast, þannig að ég millifærði bara í staðinn, og mæli með því að þú gerir slíkt hið sama.
Hér eru allar helstu upplýsingar:
Í kvöld, fimmtudaginn 6. september, verða haldnir tónleikar til styrktar Úlfi C. Karlssyni tón- og myndlistarmanni sem barist hefur við hvítblæði undanfarin ár. Úlfur hefur gengist undir fjölda meðferða og dvalist langdvölum á sjúkrastofnunum og ekki getað aflað tekna að ráði. Hann er fjölskyldumaður og hafa veikindin sett stórt strik í efnahag fjölskyldunnar. Með tónleikunum gefst fólki tækifæri til að leggja sitt af mörkum til að létta fjölskyldunni lífið í baráttunni. Allir sem koma fram gefa vinnu sína og tengjast Úlfi vináttu- og kunningjaböndum.
Dagskráin er ekki af verri endanum;
Pornopopp
Mr. Silla
The Way Down
Bacon
Singapore Sling
Rrrreykjavik!
Mínus
Í lokin má búast við hamskiptum þegar leyninúmer kvöldsins stígur á stokk.
Tónleikarnir verða í IÐNÓ og hefjast hefjast stundvíslega klukkan 20.00, húsið opnar klukkan 19.30.
Aðgangseyrir er 1.500 kr. en fólki er frjálst að borga meira.
Þeir sem vilja geta jafnframt lagt beint inn á reikning: 0101-26-014144 kt. 440304-2570
ALLUR AÐGANGSEYRIR RENNUR ÓSKIPTUR TIL ÚLFS OG FJÖLSKYLDU.
Sjáumst í IÐNÓ í kvöld. Látið sem flesta vita og takið með ykkur vini og vandamenn!
Comments
Eg kemst augljoslega ekki en takk fyrir ad setja thetta a bloggid thitt, eg er thegar buin ad leggja inn a reikningin.
Posted by: gulla | 06.09.07 14:27