Þetta var svaka tónleikahelgi.
Hún byrjaði á frekar tilþrifalitlu fimmtudags dj giggi á Kaffibarnum.
Ég spilaði svo tónleika #2 með Johnny Sexual á Barnum á föstudagskvöldið, það var þétt stemmning og svaka gaman. Einnig tók ég smá gestainnkomu með Tesla Girls, spilaði á nýju kúabjölluna mína í cover útgáfunni þeirra af Synthia með FM Belfast. Svo tóku TA! TA! TA! við með dj setti, og þeir mynduðu þéttustu stemmningu sem ég hef séð á Barnum í langann tíma.
Svo var svaka gigg hjá Golden Circle á Organ á Laugardagskvöldið. Ég var að dídjeija milli atriða framan af kvöldi. Retro Stefson hófu tónleikana, og voru í góðu stuði, og Sudden Weather Change voru á eftir þeim. Reykjavík! mættu svo með dramatískum tilþrifum. Þeir störtuðu tónleikunum með gestainnkomum frá Ernu Ómarsdóttir og Benedikt Erlingssyni. Erna framdi einhvern öskursgjörning um talandi tré og Benedikt fór með fornt kvæði við rytmískann rokk undirleik. Restin af tónleikunum þeirra var svo tryllt brjálæði, að vanda.
FM Belfast steig á svið upp úr tvö, og viðtökurnar voru rosalegar. Hljómsveitin flutti nýtt lag, Underwear, í fyrsta skipti. Þetta voru fjölmennustu tónleikar sem hljómsveitin hefur spilað, en auk Árna, Árna og Lóu voru Örvar og Birgitta í sönglínunni. Í þetta skiptið voru fjórir kúabjölluleikarar á sviðinu, þannig að ég fór í massífann keppnishug. Úr varð að ég braut tvo trommukjuða og eyðilagði eina kúabjöllu í hamaganginum, og stórmeiddi mig þar að auki á höndinni. Ég hoppaði svo mikið um að mig sortnaði fyrir augum af svima og þurfti að fara út af sviðinu nokkrum sinnum yfir tónleikana til að jafna mig. Þetta voru skemmtilegustu tónleikar sem ég hef tekið þátt í. Eftir tónleikana var ég alveg wasted, leið eins og ég væri kominn á nítjánda bjór, ráfaði reiðulaust um tónleikasvæðið á meðan 1985! voru að spila, dansaði tryllingsdans og talaði þvoglumælt. Svakastuð. Þetta var æðislegur endir á skemmtilegasta jólafríi sem ég hef átt í mörg ár.