Slúðursaga úr pólitíkinni
Kontaktar mínir í ráðhúsinu og stjórnmálaflokkunum hafa verið að halda mér uppdeituðum varðandi átök undanfarinna daga í borgarpólitíkinni. Innstu koppar í búri hafa hvíslað að mér að ástæðan fyrir spennunni sem leiddi að sprengjunni á mánudaginn hafi verið að það hafi verið að kvisast út í svolítinn tíma að Björn Ingi væri á leiðinni út, og því hafi samstarfið farið í uppnám, sem leiddi að þessarri niðurstöðu.
Nú hef ég heyrt hversvegna Björn Ingi var á leiðinni út. Sagan segir að í lengri tíma hafi staðið til að hann færi að sinna hinu hugðarefni sínu, s.s. nútímalist. Björn Ingi er víst búinn að semja við Icelandic Love Corporation um að fylla í skarðið sem Dóra Ísleifs skildi eftir fyrir nokkrum árum í gjörningarklúbbnum.
Héðan í frá verður hann því þekktur sem Gjörningi.
Comments
ógisslega ertu fyndinn!
Posted by: gulla | 26.01.08 08:07