a href="http://www.sveinbjorn.com/" accesskey="1">

« janúar 2008 | Main | mars 2008 »

febrúar 21, 2008

Nicholas Gurewitch

Nicholas Gurewitch, höfundur Perry Bible Fellowship teiknimyndasagnanna, hefur ákveðið að hætta reglulegri útgáfu þeirra. Hann mun víst halda áfram að gefa þær út óreglulega, en hann mun hætta vikulegri birtingu þeirra. Þetta er hálfpartinn súrt, en eflaust samt ágætt þar sem að vikuleg dagskrá þessarra sagna var farin að taka sinn toll á gæðin. En ef þið hafið aldrei skoðað þetta áður, tékkið á þessu. Þetta er fyndnast í heimi.

Annars ætlar Nicholas víst að helga sig öðrum verkefnum. Það kom mér mikið á óvart að sjá að hann hafi leikstýrt nokkrum myndböndum. Hérna eru tvö dæmi:

» Ra Ra Riot - Dying is fine
» The Capitol Years - You Can Stay There

- Og ein stuttmynd byggð á sögum hans:
» Poor Jimmy

febrúar 13, 2008

Búinn með BA.

Ég var að skila BA ritgerðinni minni í gær, um Gotneskt letur og Guðbrandsbiblíu. Ef þér langar til að skoða, þá er hún hér (PDF skjal - 600k)

febrúar 2, 2008

Úbs

Allt í steik á blogginu. Er að reyna að finna út hvernig ég sía betur út allt spammið sem er farið að detta inn á bloggið, og er að fikta í öllum mögulegum og ómögulegum stillingum. Nú er síðan mín tímabundið frekar asnaleg. Ef einhver kann Movable Type viðgerðir þá má viðkomandi endilega gefa sig fram.