« Búinn með BA. | Main | Mont II »

Nicholas Gurewitch

Nicholas Gurewitch, höfundur Perry Bible Fellowship teiknimyndasagnanna, hefur ákveðið að hætta reglulegri útgáfu þeirra. Hann mun víst halda áfram að gefa þær út óreglulega, en hann mun hætta vikulegri birtingu þeirra. Þetta er hálfpartinn súrt, en eflaust samt ágætt þar sem að vikuleg dagskrá þessarra sagna var farin að taka sinn toll á gæðin. En ef þið hafið aldrei skoðað þetta áður, tékkið á þessu. Þetta er fyndnast í heimi.

Annars ætlar Nicholas víst að helga sig öðrum verkefnum. Það kom mér mikið á óvart að sjá að hann hafi leikstýrt nokkrum myndböndum. Hérna eru tvö dæmi:

» Ra Ra Riot - Dying is fine
» The Capitol Years - You Can Stay There

- Og ein stuttmynd byggð á sögum hans:
» Poor Jimmy

Post a comment