Ég veit bara ekki alveg hvernig ég á að taka þessu
Ég hef yfirleitt verið nokkuð ánægður með þetta blogg. Ég hef ekki mikið verið að bera það saman við önnur blogg, og þó að Halli sé yfirleitt með lengri færslur en ég og Bobby birti miklu fleiri færslur, þó að Katrín sé með fleiri sjálfsmyndir en ég, þá hef ég hingað til ekki séð ástæðu til að bera mig saman við aðra bloggara. Enda virðist fólki líka bloggið vel, það er vel lesið, og hef ég meira að segja hlotið heiðurs-doktortitil frá háskólanum í tromsö fyrir bloggfærslu hér.
En samkeppnin hefur allt í einu færst í aukana. Ég er nú kominn í rífandi samkeppni við Blogg Meistara. Og ég er að tapa. Hvernig getur maður haldið í við mann sem getur skrifað svona stutta og skorinorta gullmola, færslu eftir færslu? (ég myndi skrifa færslu eftir færslu eftir færslu, en hann hefur bara birt tvær).
Kæru lesendur. Ég skil vel ef þið yfirgefið þennann óæðri vefannál og leggið héðan í frá í vana ykkar að koma við hjá Blogg Meistaranum í staðinn. Ég veit að ég myndi gera það.
Takk fyrir komurnar.

