« hakk | Main | Strákurinn »

Reglur internetrifrilda

Af gefnu tilefni:


#1:
Ekki koma af stað ílldeilum á internetinu ef þú treystir þér ekki til að bakka upp það sem þú segir.

#2:
Ef þú veist ekki hvernig þú átt að svara viðbrögðum fólks við því sem þú hefur sagt, ekki segja neitt. Internetið þeysist áfram á fjórföldum hraða, það verða allir búnir að gleyma þessu eftir hálfann dag. Ekki henda út því sem þú kannt ekki að svara. Það er bara glatað.

Það versta við þessa bloggtísku hjá eldra liðinu er það að það er að streyma inn á netið fólk sem kann sig ekki, veit ekki upp á sig skömmina, en ætti samt að vera nógu gamalt til að vita betur. Þeir mannasiðir sem tíðkast í matarboði tíðkast á netinu. Þú verður að standa við það sem þú segir og það að þagga niður í fólki sem þú skilur ekki eða er þér ofjarl í röksemdafærslu eða gríni er plebbalegt, hvort sem það er yfir pastarétti á Horninu eða á Vísisbloggi. Þó að það sjái þig enginn á meðan þú ert á internetinu þá sjá samt allir sem vilja hvað þú gerir þar.

Meira um það hversvegna ég er svona pirraður hérna.

Comments

Dr. Sveinbjörn, ertu búinn að sjá nýju málefnalegu ummælin hjá hinum gæjanum?

Ég átti Kasparov tölvustýrt skákborð þegar ég var níu ára og bjó í Gautaborg. Ég var ekki jafn góður taflmaður og ég villdi vera, og þegar nýr vinur minn, tvemur árum yngri eða svo, var búinn að rústa mér tvisvar eða þrisvar þá fór ég að notfæra mér undo takkann skákborðinu umtalsvert, án þess að leyfa andstæðingi mínum hið sama.

Á endanum gerði hann Hugi það eina rétta í stöðunni, hann hætti að nenna að spila við mig.

Ég lærði það níu ára gamall að slík hegðun er í hæsta máta ósanngjörn, og barnaskapur.

Ég er búinn að gera eins og Hugi, og ég er hættur að fylgjast með þarna.

Djöfull væri samt fyndið ef aðrir fjölmiðlar hegðuðu sér svona. Ef ritstjóri moggans lenti í ritdeilum í innsendum bréfum og færi bara að editera bréf mótherja sinna á fullu.

:D

Post a comment