Strákurinn
Pabbi minn var til sjós á sínum yngri árum. Hann hætti því (að undanskildum einum túr sem við fórum saman, hann ég og stóra systir um evrópu með Mælifelli Árfelli 1990 eða svo) upp úr 1983, en átti samt svona sjóaravini og talaði oft sjóaralega með sjóaravinunum.
Eða ég held það allavega, því einhversstaðar lærði ég frasann "hefur ekki migið í saltann sjó".
Ég var nýfluttur á Súðavík, sennilega ellefu ára gamall, þegar ég fór að velta fyrir mér þessum frasa og hvað hann hefði að segja um mig. Ég ákvað að bæta stöðuna strax, skellti mér niðrá bryggju og leiðrétti málið hið snarasta.