Horror
Klukkan er þrjú á aðfaranótt þriðjudags.
Ég á ekki að vera vakandi. Svo mikið er víst. En það er víst eitthvað í mínu eðli sem gerir það að verkum, að ég þekki mjög vel hljóðin sem myndast í portinu fyrir framan íbúðina mína á þessum tíma sólarhrings.
Í fyrsta lagi er það náttúrulega laugarvegurinn. Á mismunandi tímum sólarhrings gefur hann frá sér mismunandi hljóð, á þessum tíma er það einn og einn hópur annað slagið að rölta framhjá í eitthvað eftirápartí. Flestir íbúar laugavegs þekkja það.
Í annann stað er það vinamikli nágranninn. nánast á hverju kvöldi heyrir maður í ógæfufólki rölta fram hjá stofuglugga kjallaraíbúðarinnar okkar, á leið inn í port til að banka uppá hjá kallinum. Þvoglumælt og skjögrandi. Fyrst hélt ég að það hlyti að búa þarna frekar ógæfusamt eintak, miðað við fólkið sem reynir að banka upp á hjá honum, en svo hitti ég kallinn inní þvottahúsi, hann virtist bara nokkuð viðkunnalegur.
Svo er það morðinginn. Innrásarmorðinginn! Ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa þesa færslu.
Ég heyrði einhvern arka fram hjá glugganum sem ég sit við, hröðum og ákveðnum skrefum. Í átt að útidyrahurðinni minni. Hjartstlátturinn minn jókst og ég fékk smá gæsahúð. Sjáöldrin víkkuðu og blóðið rauk upp í hausinn. Hann var kominn að hurðinni. Það heyrðist þegar hann kom við hurðina. Brak og brölt. Og inn skaust fréttablaðið. Þetta gerist á hverri nóttu. Hann er að flýta sér svo mikið, blaðberinn, að allt þetta gerist á sirka sekúndu. Og mig bregður alveg jafn mikið í hvert skipti.
Að lokum er það morðóði bíllinn Christine. Hann er reyndar hættur að mæta. En í svona mánuð, gerðist það svona tvisvar í viku að einhver snillingur sem var búinn að leggja bílnum sínum fyrir utan svefnherbergisgluggann okkar ákvað að skella sér í bíltúr klukkan þrjú um nóttina. Inn um gluggan barst í thx dúndurhljóm öskur vélarinnar, og framljós bílsins flóðlýsa herbergið í nokkrar sekúndur. Ég held að þetta hafi verið Volkswagen polo eða eitthvað slíkt, en þegar þú sérð þetta þegar þú ert hálf sofandi, er þetta ógnvekjandi sýn.