a href="http://www.sveinbjorn.com/" accesskey="1">

« janúar 2009 | Main | apríl 2009 »

mars 22, 2009

Gula pressan

Pressan er nýr fréttavefur á netinu. Stutt eftirgrenslan leiddi í ljós að Björn Ingi er aðal maðurinn á bak við þetta, þannig að ég tek hlutdrægni frétta vefsins með talsverðum fyrirvara.

Hinsvegar er þarna skrípódálkur sem heitir Gula pressan sem ég mæli óhikað með.

Stórfyndið dót og mörg sannleikskornin þar að finna.

mars 11, 2009

Alvöru tetris

Ég er mikill tetrisunnandi. Alltaf þegar ég verð mér úti um nýja tölvu eða tölvugræju þá reyni ég að setja tetris inn á hana. Er búinn að vera með þetta á síma, nintendo ds, öllum tölvum sem ég hef átt, og svo framvegis.

Mér finnst ég ýkt klár í Tetris.

Ég á samt ekki sjens í þetta.

Þetta er alvöru stöff.