Sveinbjörn
Ég veit bara ekki alveg hvernig ég á að taka þessu
    <summary>Ég hef yfirleitt verið nokkuð ánægður með þetta blogg. Ég hef ekki mikið verið að bera það saman við önnur blogg, og þó að Halli sé yfirleitt með lengri færslur en ég og Bobby birti miklu fleiri færslur, þó að...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA[Ég hef yfirleitt verið nokkuð ánægður með þetta blogg. Ég hef ekki mikið verið að bera það saman við önnur blogg, og þó að Halli sé yfirleitt með lengri færslur en ég og Bobby birti miklu fleiri færslur, þó að Katrín sé með fleiri sjálfsmyndir en ég, þá hef ég hingað til ekki séð ástæðu til að bera mig saman við aðra bloggara. Enda virðist fólki líka bloggið vel, það er vel lesið, og hef ég meira að segja hlotið heiðurs-doktortitil frá háskólanum í tromsö fyrir bloggfærslu hér.
En samkeppnin hefur allt í einu færst í aukana. Ég er nú kominn í rífandi samkeppni við Blogg Meistara. Og ég er að tapa. Hvernig getur maður haldið í við mann sem getur skrifað svona stutta og skorinorta gullmola, færslu eftir færslu? (ég myndi skrifa færslu eftir færslu eftir færslu, en hann hefur bara birt tvær). 
Kæru lesendur. Ég skil vel ef þið yfirgefið þennann óæðri vefannál og leggið héðan í frá í vana ykkar að koma við hjá Blogg Meistaranum í staðinn. Ég veit að ég myndi gera það.
Takk fyrir komurnar.]]>
Dr. Sveinbjörn Einstein
        <name>Sveinbjörn</name>
Af hverju ég blogga sjaldan.
    <summary> Ég sá þetta á skjánum mínum um daginn. Ég hef klárlega dottið í lukkupottinn. Ég byrja kannski að blogga aftur reglulega þegar ég er búinn að finna út hvað ég ætla að gera við alla peningana. Sjáumst þá!...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
Ég sá þetta á skjánum mínum um daginn.
Ég hef klárlega dottið í lukkupottinn.
Ég byrja kannski að blogga aftur reglulega þegar ég er búinn að finna út hvað ég ætla að gera við alla peningana.
Sjáumst þá!]]>
Strákurinn
    <summary>Pabbi minn var til sjós á sínum yngri árum. Hann hætti því (að undanskildum einum túr sem við fórum saman, hann ég og stóra systir um evrópu með Mælifelli Árfelli 1990 eða svo) upp úr 1983, en átti samt svona...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA[Pabbi minn var til sjós á sínum yngri árum. Hann hætti því (að undanskildum einum túr sem við fórum saman, hann ég og stóra systir um evrópu með Mælifelli Árfelli 1990 eða svo) upp úr 1983, en átti samt svona sjóaravini og talaði oft sjóaralega með sjóaravinunum. 
Eða ég held það allavega, því einhversstaðar lærði ég frasann "hefur ekki migið í saltann sjó". 
Ég var nýfluttur á Súðavík, sennilega ellefu ára gamall, þegar ég fór að velta fyrir mér þessum frasa og hvað hann hefði að segja um mig. Ég ákvað að bæta stöðuna strax, skellti mér niðrá bryggju og leiðrétti málið hið snarasta.]]>
Reglur internetrifrilda
    <summary>Af gefnu tilefni: #1: Ekki koma af stað ílldeilum á internetinu ef þú treystir þér ekki til að bakka upp það sem þú segir. #2: Ef þú veist ekki hvernig þú átt að svara viðbrögðum fólks við því sem þú...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA[Af gefnu tilefni:
#1:
Ekki koma af stað ílldeilum á internetinu ef þú treystir þér ekki til að bakka upp það sem þú segir.
#2:
Ef þú veist ekki hvernig þú átt að svara viðbrögðum fólks við því sem þú hefur sagt, ekki segja neitt. Internetið þeysist áfram á fjórföldum hraða, það verða allir búnir að gleyma þessu eftir hálfann dag. Ekki henda út því sem þú kannt ekki að svara. Það er bara glatað.
Það versta við þessa bloggtísku hjá eldra liðinu er það að það er að streyma inn á netið fólk sem kann sig ekki, veit ekki upp á sig skömmina, en ætti samt að vera nógu gamalt til að vita betur. Þeir mannasiðir sem tíðkast í matarboði tíðkast á netinu. Þú verður að standa við það sem þú segir og það að þagga niður í fólki sem þú skilur ekki eða er þér ofjarl í röksemdafærslu eða gríni er plebbalegt, hvort sem það er yfir pastarétti á Horninu eða á Vísisbloggi. Þó að það sjái þig enginn á meðan þú ert á internetinu þá sjá samt allir sem vilja hvað þú gerir þar.
Meira um það hversvegna ég er svona pirraður hérna.]]>
hakk
        <name>Sveinbjörn</name>
Nýjar myndir
    <summary>Var að henda nýjum símamyndum inná flickr. Ef þú þekkir mig er kannski mynd af þér þarna! Heppin/n! » Símamyndir 2007-8 á Flickr...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA[Var að henda nýjum símamyndum inná flickr. Ef þú þekkir mig er kannski mynd af þér þarna! Heppin/n!
» Símamyndir 2007-8 á Flickr
Útvarpsþátturinn minn
    <summary>Og hey. Eitt enn. Ég er kominn með útvarpsþátt. Ég er orðinn meðstjórnandi útvarpsþáttarins Fönkþátturinn á X-inu 977, öll fimmtudagskvöld á milli ellefu og eitt, ásamt D. Balla F. Þið getið hlustað á þáttinn með útvarpstækjunum ykkar, á tíðinni 97.7...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA[Og hey. Eitt enn.
Ég er kominn með útvarpsþátt. Ég er orðinn meðstjórnandi útvarpsþáttarins Fönkþátturinn á X-inu 977, öll fimmtudagskvöld á milli ellefu og eitt, ásamt D. Balla F. 
Þið getið hlustað á þáttinn með útvarpstækjunum ykkar, á tíðinni 97.7 megarið, eða á netinu, á meðan að útsendingu stendur. Einnig getið þið hlustað á nýjasta þáttinn eftir á, á vefútvarpssíðu X-ins á Vísi.is. Til stendur að henda upp podcasti af þættinum, við erum að reyna að finna út úr því.
Tékkið endilega á þættinum, ef þið hafið áhuga á því nýjasta sem er að gerast í hressri elektrónískri músík.
Grettir mínus grettir plús grettir samasem...
    <summary>Í byrjun mars skrifaði ég um Garfield minus Garfield, sem er nokkuð súrrealísk endurvinnsla á teiknimyndasögunum um Gretti, þar sem að allir nema Jón eru fjarlægðir, og í ljós kemur dýpri sannleikur um einmanna manninn sem talar við gæludýrin sín....</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA[Í byrjun mars skrifaði ég um Garfield minus Garfield, sem er nokkuð súrrealísk endurvinnsla á teiknimyndasögunum um Gretti, þar sem að allir nema Jón eru fjarlægðir, og í ljós kemur dýpri sannleikur um einmanna manninn sem talar við gæludýrin sín. Drullufyndið líka.
Ég var að rekast á nokkuð skemmtilega grein um þetta, sem inniheldur m.a. viðtal við Jon Davis, höfund Garfield. Stórmerkilegt.]]>
Ekki versla við Burger King.
    <summary>Ekki versla við Burger King....</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
Tilvitnun vikunar
    <summary>"Ég held með Barbímanninum og mömmu hans" Haft eftir leikskólabarni, sem Dagný sá í viðtali við einhverja sjónvarpsstöðina, um hvern barnið styddi í Eurovision...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA["Ég held með Barbímanninum og mömmu hans"
Haft eftir leikskólabarni, sem Dagný sá í viðtali við einhverja sjónvarpsstöðina, um hvern barnið styddi í Eurovision
Auglýsingabrandari dagsins
    <summary>"Láttu ekki vín breyta þér í Húsa og Völu!" brandari stolinn frá Ara Eldjárn...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA["Láttu ekki vín breyta þér í Húsa og Völu!"
brandari stolinn frá Ara Eldjárn]]>
Og eitt enn
    <summary>Og eitt enn: Kíkið endilega á útskriftarsýningu LHÍ á Kjarvalsstöðum. Tékkið á því hvað ég og aðrir útskriftanemar hafa verið að bauka í vetur. Sýningin er opin til 2. mai....</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        Og eitt enn:
Kíkið endilega á útskriftarsýningu LHÍ á Kjarvalsstöðum. Tékkið á því hvað ég og aðrir útskriftanemar hafa verið að bauka í vetur. Sýningin er opin til 2. mai.
Baudrillard
    <summary>Baudrillard og nihilismi Glefsur Þetta er síðasta ritgerðin sem ég skrifa í heimspekitengdum kúrs í Listaháskólanum. Munstrið er alltaf eins. Í fyrsta tímanum reynir maður að átta sig á viðfangsefninu, í öðrum tímanum berst maður við að halda athygli, og...</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        <![CDATA[Baudrillard og nihilismi
Glefsur
Þetta er síðasta ritgerðin sem ég skrifa í heimspekitengdum kúrs í Listaháskólanum. Munstrið er alltaf eins. Í fyrsta tímanum reynir maður að átta sig á viðfangsefninu, í öðrum tímanum berst maður við að halda athygli, og í þriðja og fjórða tíma er maður nokkurnveginn búinn að gefast upp. Ef maður er heppinn fer eitthvað að smella í fimmta tímanum. Þegar hlutirnir fara að smella myndast alltaf sami pirringurinn. Hann er nokkurnveginn svona: "Hey! Ég hefði nú skilið þetta miklu fyrr ef það hefði ekki verið svona mikið af stórum orðum í þessu! Hann er bara að segja X". 
Eins og fyrr er ég mjög efins með hvað ég dreg út úr þessum texta. Ég sit ekki uppi með eina hugmynd, heldur frekar glefsur af hugmyndum. 
Sannleikurinn er dauður. Ef hann var þá nokkurntímann lifandi. Þú þarft ekki nema að kveikja á kapalfréttastöð, og horfa á "raunveruleikann" saxaðann niður í litla hlutdræga bita, sem þjóna annaðhvort ritstjórnalegri stefnu miðilsins eða þörf hans til að gera "raunveruleikann" meira spennandi, til að sjá hversu lítið sannleikurinn er virði í dag. 
Þessi nútímalega tilvist okkar, "ofurraunveruleikinn", er samt bara hið mennska ástand, margfaldað með ofsahraða lífsins og flæði upplýsinga í nútímanum. Það er ekkert nýtt undir sólinni. 
Hugsun og skilgreiningar eru gallaðar. Þær virka bara í samhengi við aðra hluti, og ein skilgreining á hlut þýðir helst það að hluturinn samanstendur af vöntun á því sem hann er ekki. Því hangir skilgreining okkar á hlut, hvernig við upplifum tilvist téðs hluts, á því í hvaða samhengi hann er settur. 
Baudrillard talar um sjálfann sig sem níhilista. Níhilisminn hans er samt í nýjum buxum. Hann er ekki lengur þjakaður af "þungbúnum wagneriskum sótugum litum aldarhvarfa", heldur byggist hann á gagnsæi. Internetið vill ekki segja mér hver munurinn er á gagnsæi og gegnsæi. 
Baudrillard talar mikið um ástand nútímans. Ég get samt lítinn greinarmun gert á nútímanum og stöðu mannsins á hvaða tímapunkti sem er. Það truflar mig alltaf þegar fólk talar um hvernig hlutirnir eru "núorðið". Mér finnst alltaf eins og þessi tegund af hugsun sé leið egósins til að staðsetja sjálft sig á mikilvægasta tímapunkti sögunar. Mómentið þegar allt fór til andskotans. Ég var á staðnum þegar guð dó. Þegar raunveruleikinn dó. Þetta er nokkuð skylt trúarbrögðum sem aðhyllast nánd heimsenda. Þú ert staðráðinn í því að plánetan springi eða guð komi og sópi upp alla sem fatta hlutina út af því að það gefur lífi þínu, og vina þinna sem líka fatta hlutina svo miklu meira vægi. En Baudrillard segir líka að heimsendir sé búinn að vera.
"Rómantík - fagurfræði hlutleysis" - þetta er merkileg setning. Ég var að vinna fyrir mann sem heitir Agnar, í auglýsingabransanum. Ég og Agnar þessi teljumst báðir til X-kynslóðarinnar (þó að ég sé samt aðeins of ungur til að falla almennilega inn í þetta mengi). Agnar var alltaf að pæla í muninum á kynslóðunum.  X-kynslóðin aðhylltist virkilega fagurfræði hlutleysis. Á rómantískann hátt. Bíómyndirnar sem mótuðu þessa kynslóð, og sem eldri meðlimir kynslóðarinnar þreyttu frumraunir sínar í, snérust allar um algert hlutleysi. Allir voru andhetjur, allt var baðað í kaldhæðni. Kynslóð sem langaði til þess að berjast fyrir einhverju, en það var ekkert til að berjast fyrir, þannig að þá var ekkert annað í stöðunni en að hanga, gera ekki neitt, og vera geðveikt írónískur með hlutina. Ég veit ekki hversu margar myndir ég sá á unglingsárunum sem fjölluðu um, og dásömuðu "slackera". Með kynslóðinni sem fer á eftir minni virðist þetta ekki lengur vera eitthvað sem menn eltast við að vera. Kynslóðin á eftir eru náttúrulegir "slackerar". Það er engin rómantík tengd því, þau horfðu bara á kynslóðina á undan og mátu sem svo að svona ætti maður að vera. 
Ég var að velta fyrir mér að skila inn ritgerð um Baudrillard og Nihilisma sem innihéldi bara eina setningu: "Þetta er allt tilgangslaust". Kannski margfalda setninguna upp í 1000 orð. Á endanum var ég samt ekki nógu mikill níhilisti til að meika það.
Ég er ekki "fluent" í orðræðu nútíma heimspeki. Fyrir mér er það að skrifa ritgerð í kúrsi eins og þessum svolítið eins og að reyna að þýða grein af þýsku, sem er tungumál sem ég skil nokkurnveginn ekki. Ég plokka út orðin og setningarnar sem ég skil, fletti nokkrum upp, reyni að púsla saman nokkrar setningar sem ég skil, skálda í eyðurnar. Ég er forvitinn að vita hvort að þetta sé svona hjá öllum. Hvort að Baudrillard hafi setið yfir verkum forvera sinna, fattað svona helminginn og skáldað síðan í eyðurnar.
Ég er nokkuð viss um að glefsurnar hans Baudrillard séu gáfulegri en mínar. Ég held samt að hann hefði ekki skilið þennann texta að fullu. Hann hefði kannski getað pikkað út nokkur orð í íslensku sem líkjast frönskum eða þýskum orðum, og reynt svo að skálda í eyðurnar.
Sveinbjörn Pálsson]]>
Búinn!
    <summary>Var að ýta á send. Bréfið var stutt, útlistun á hvað væri í viðhengi bréfsins. Í viðhenginu var síðasta ritgerð sem ég skila í Listaháskóla Íslands. Ég er búinn. Frjáls maður. Nú er bara að finna sér nýja ánauð....</summary>
        <name>Sveinbjörn</name>
        Var að ýta á send.
Bréfið var stutt, útlistun á hvað væri í viðhengi bréfsins. Í viðhenginu var síðasta ritgerð sem ég skila í Listaháskóla Íslands.
Ég er búinn.
Frjáls maður.
Nú er bara að finna sér nýja ánauð.