Main

júní 10, 2007

Löndun

Ég sit á internetkaffihúsi í Löndun. Er í heimsókn hjá Sigga Eggerts sem er að meikaða í útlöndum.

Ég lenti í gærmorgun, og mestur tíminn hefur farið í að mæla göturnar og skoða verslunarhætti breta. Við Siggi stigum út úr einhverri verslun á Oxford stræti, og sáum þá nakinn mann hjóla fram hjá. Á eftir honum komu 2000 eða svo bestu vinir hans, öll berrössuð og á hjóli líka. Við stóðum og göptum í svona tíu mínútur.
Svo fórum við í heimsókn til vinkonu hans, sem rekur einhverja fataverslun. Sátum uppá þaki verslunarinnar í góða veðrinu.

Lundúnarbúar eru talsvert meira móðins og skræpóttir en danir.

Í dag fórum við á Brick lane, á markað. Merkilegt hvað svona markaðir eru alltaf svipaðir. Ódýr sólgleraugu, stolin hjól, gömul lyklaborð og einn gæji með bongó. Gæjinn með bongó var reyndar í þetta skipti heil fjölskylda frá hawaii sem dönsuðu tiki dansa. Svo fórum við á útskriftarsýningu hjá einhverjum listaháskóla. Sýningin fékk mig til að meta útskriftarsýningu LHÍ talsvert meira. Ég held að það að fæðast í útnára veraldar gefi listhneigðum krökkum meiri þörf til að marka sér sérstöðu. Það var allavega ekki mikið fyrir þannig tendensum að fara á þessarri sýningu. Svo fórum við reyndar á aðra skólasýningu frá skóla sem er eitthvað fyrir utan bæinn, og hún var talsvert betri.

Netkaffitíminn minn er búinn, ég er farinn að gera eitthvað skræpótt og móðins.